68.000 glötuð góð æviár Svavar Hávarðsson skrifar 30. maí 2014 07:00 Fréttablaðið/AP
Mælikvarðar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) sýna að fórnarkostnaður vegna lífsstílssjúkdóma á Íslandi er ógnarhár en á sama tíma verja fáar vestrænar þjóðir eins litlu fé til beinna forvarna. Kallað er eftir heildstæðri forvarnastefnu í anda þeirra sem Norðurlandaþjóðirnar hafa unnið. Á þetta bendir Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS, meðal annars í blaði samtakanna sem kemur út eftir helgi. Hann segir að hið opinbera verði að fjárfesta í forvörnum á sviði lífsstíls, því að óbreyttu gæti næsta kynslóð lifað skemur en foreldrar hennar. Í dag eru um 500 milljónir veittar til beinna forvarna; og þá helst krabbameinsleitar og áfengis- og vímuvarna. Kostnaður við heilbrigðisstofnanir og heilsugæslu losar 100 milljarða, en Guðmundur tekur fram að innan heilsugæslunnar fari fram mikið forvarnastarf. Þegar allt er skoðað fer 1,6 prósent af útgjöldum heilbrigðiskerfisins í forvarnir. Á sama tíma stafa 80 prósent kostnaðar af langvinnum sjúkdómum, sem að meira eða minna leyti má rekja til lífsstíls, segir Guðmundur. Spurður um þjóðhagslegan sparnað af forvörnum í þessu ljósi bendir Guðmundur á skýrslu WHO, Global burden of disease, frá 2012 þar sem heilsufarsskaði þjóða er mældur með því að leggja saman glötuð æviár vegna ótímabærs dauða og æviár sem einstaklingur lifir við örorku, en beitt er kvarða sem nefndur er „glötuð góð æviár“. Samkvæmt WHO voru árin 68.000 talsins þegar skýrslan kom út árið 2012. Landsframleiðsla á mann á Íslandi samkvæmt Hagstofu Íslands var 5,2 milljónir króna á sama tíma, og miðað við það er heilsufarsskaðinn ríflega 350 milljarðar. „Þó þetta sé vitanlega ekki fullkominn kvarði og mikil einföldun þá er ljóst að þó aðeins takist að tálga eitt prósent af, með markvissum forvörnum á sviði lífsstíls, þá erum við strax farin að tala í milljörðum í lægri sjúkrakostnaði og auknu vinnuframlagi,“ segir Guðmundur. Á Norðurlöndunum er verið að innleiða heildstæða stefnu á sviði ósmitnæmra sjúkdóma – lífsstílssjúkdóma. Hún tekur sameiginlega á stórum áhættuþáttum þeirra og sett eru undir einn hatt hjarta- og æðasjúkdómar, sykursýki, ákveðnir öndunarfærasjúkdómar og krabbamein. „Á sama tíma erum við að setja saman forvarnastefnu fyrir krabbamein einvörðungu, í stað þess að vinna þetta heildstætt. Við ættum að læra af þessum nágrönnum okkar,“ segir Guðmundur en stærstu ógnir við heilsufar Íslendinga eru stoðkerfisraskanir, geðraskanir, krabbamein og hjarta- og æðasjúkdómar – í þessari röð. Áhættuþættir sem vega þyngst eru mataræði, ofþyngd, reykingar og háþrýstingur.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira