Telja Dag hafa notað bifreið borgarstjóra í leyfisleysi Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 25. júlí 2014 20:37 Jón Gnarr og Dagur B. Eggertsson. vísir/valli
Í borgarstjóratíð Jóns Gnarr hafði staðgengill hans, Dagur B. Eggertsson, núverandi borgarstjóri, afnot af bíl borgarstjóra. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins segja að Dagur hafi notið bílafríðinda hjá borginni umfram aðra borgarfulltrúa, þrátt fyrir að hafa haft afnot af tveimur öðrum bifreiðum án þess að formleg ákvörðun hafi verið tekin um það á þar til bærum vettvangi. Þetta kemur fram í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokks en þetta er í annað sinn sem slík bókun er lögð fram.Í bókuninni segir: „Margir aðrir borgarfulltrúar eru mikið á ferðinni í opinberum erindagjörðum án þess að þeim standi til boða afnot af bifreiðum borgarinnar eins og gerst hefur í þessu tilviki.“ Þá kemur jafnframt fram að nauðsynlegt sé að skýra reglur um bílafríðindi kjörinna fulltrúa og að komið verði í veg fyrir notkun þeirra á bifreiðum Reykjavíkurborgar án þess að skýr heimild liggi fyrir um slíkt. Borgarráð óskar því eftir endurskoðun á samgöngusamningi ríkisins og Reykjavíkurborgar. Bókunina í heild sinni má sjá hér að neðan.Framlagt svar við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um notkun borgarfulltrúa á bifreiðum í eigu Reykjavíkurborgar er um margt óljóst. Af svarinu má þó ráða að einn borgarfulltrúi hafi notið bílafríðinda umfram aðra í verulegum mæli. Í svarinu kemur fram að annars vegar hafi borgarfulltrúinn haft afnot af bíl borgarstjóra þegar hann gegndi starfskyldum svokallaðs staðgengils hans og stöku sinnum í ,,opinberum erindagjörðum“ á vegum Reykjavíkurborgar eins og segir í svarinu án þess að það sé skilgreint nánar, en með því hlýtur að vera átt við erindisrekstur sem fellur utan starfsviðs svokallaðs staðgengils. Hins vegar hafi borgarfulltrúanum staðið til boða afnot af tveimur öðrum bifreiðum til slíkra erindagjörða.Ljóst er að umræddur borgarfulltrúi hefur notið bílafríðinda hjá borginni umfram aðra borgarfulltrúa án þess að formleg ákvörðun hafi verið tekin um það á þar til bærum vettvangi, þ.e. í forsætisnefnd. Margir aðrir borgarfulltrúar eru mikið á ferðinni í opinberum erindagjörðum án þess að þeim standi til boða afnot af bifreiðum borgarinnar eins og gerst hefur í þessu tilviki. Brýnt er að skýrar reglur gildi um bílafríðindi kjörinna fulltrúa er og að komið verði í veg fyrir notkun þeirra á bifreiðum Reykjavíkurborgar án þess að skýr heimild liggi fyrir um slíkt.11. Lagt fram að nýju bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 7. maí 2014, með tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks um endurskoðun á samgöngusamningi ríkis og Reykjavíkurborgar, sem vísað var til borgarráðs á fundi borgarstjórnar 6. maí sl. Jafnframt lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 26. maí 2014. R14050048Borgarráð leggur til að tillagan verði samþykkt svo breytt:Borgarráð felur borgarstjóra að óska eftir endurskoðun á samgöngusamningi ríkisins og Reykjavíkurborgar.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Sjá meira