Bjarni hallast æ meira að því að fjölga seðlabankastjórum Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 12. ágúst 2014 20:00
Skipunartími Más Guðmundssonar í embætti seðlabankastjóra rennur út 20. ágúst næstkomandi, eða eftir átta daga. Fjármálaráðherra segir að ráðning nýs seðlabankastjóra hafi tekið lengri tíma en gert var ráð fyrir, en hann vonast til þess að tilkynna um ráðninguna í þessari viku. Nefnd sem mat hæfni umsækjenda taldi þrjá umsækjendur hæfasta til að gegna embættinu, þá Friðrik Má Baldursson, Ragnar Árnason og Má Guðmundsson. Fjármálaráðherra skipaði í vor nefnd sérfræðinga um heildarendurskoðun laga um Seðlabanka Íslands en nefndin mun skila ráðherra frumvarpi til nýrra laga eigi síðar en 31. desember næstkomandi. Eitt af því sem nefndin þarf að taka afstöðu til er fjöldi seðlabankastjóra, en talsvert hefur verið rætt um hugsanlega fjölgun seðlabankastjóra úr einum í þrjá og er fjármálaráðherra jákvæður í garð slíkra breytinga. „Ég hallast æ meira að því að það sé full ástæða til að hafa fleiri en einn seðlabankastjóra,” segir Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra. Hvers vegna? „Meðal annars vegna þess hve verkefni Seðlabankans hafa stóraukist á undanförnum árum. Við erum í dag til dæmis með mjög eignamikið eignarhaldsfélag, við erum líka með gjaldeyrisvaraforða sem er margfaldur á stærð, miðað við það sem áður var,” segir Bjarni. Samkvæmt núgildandi lögum um Seðlabanka Íslands er aðeins heimilt að skipa einn í embætti seðlabankastjóra og því þarf að koma til lagabreytinga, ef fjölga á seðlabankastjórum. „Það er síst minni þörf í dag að hafa einn seðlabankastjóra, en þegar þrír sátu í bankanum.” En er ágreiningur um það í ríkisstjórninni hvort það eigi að fjölga seðlabankastjórum? „Við erum ekkert að ræða þetta á þessum tímapunkti. Þetta er þetta til sérstakrar skoðunar, ég er bara að segja að ég hallast að þessari skoðun í augnablikinu,” segir Bjarni.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira