Sport

„Þegar þú skráir þig á Íslandsmót skuldbindur þú þig að taka þátt“

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Valsstúlkur fara á Egilsstaði. Myndin tengist fréttinni ekki.
Valsstúlkur fara á Egilsstaði. Myndin tengist fréttinni ekki. Vísir/Getty
Nú stendur til að sjöundi flokkur kvenna frá Val fari á Egilsstaði og taki þátt í annari umferði Íslandsmótsins í körfuknattleik, en í vikunni leit út fyrir að liðinu gæti jafnvel verið vísað úr Íslandsmótinu, því foreldrar stúlknanna vildu ekki að þær ferðuðst austur til að keppa um næstu helgi.

„Þetta eru rosa­lega harka­leg viðbrögð og harka­leg­ar regl­ur. Þessi börn eru ekki í NBA. Þau eru bara í íþrótt­um að reyna að hafa gam­an og maður spyr bara: hvar er íþrótta­and­inn?“ var haft eftir foreldri einnar stúlkunnar í flokknum í frétt mbl.is í fyrrakvöld. Foreldrið kom ekki fram undir nafni.

Í fréttinni kom fram að foreldrar voru ósáttir við að þurfa að senda dætur sínar, tólf ára gamlar, á Egilsstaði næstu helgi. Daginn eftir mótið eiga þær að fara í skólaferð á Reyki í Hrútafirði. Foreldrarnir töldu vera of stutt á milli ferðanna auk þess sem kostnaðurinn er verulegur, er kom í fréttinni.

Blaðamaður Vísis ræddi bæði við yfirmann barna- og æskulýðssviðs Vals, Viðar Bjarnason, og mótastjóra KKÍ, Stefán Þór Borgþórsson, um málið. Viðar segir að vinna standi yfir í að reyna að senda stúlkurnar á Egilsstaði. Stefán Þór segir að ef lið skrái sig á Íslandsmót verði þau að taka þátt. Það sé ekki hægt að velja að sleppa lengri ferðalögunum eins og til Egilsstaða, en á sama tíma ætlast til þess að lið af landsbyggðinni komi í öll mót. Hann segir að vinna við skipulagningu þessa móts hafi verið hefðbundin og farið eftir þeim vinnureglum sem mótanefnd vinnur eftir.

Viðkvæmt skipulag

Stefán bendir á að mikið skipulag sé hverja keppnishelgi, en allir flokkar sem skráðir eru á Íslandsmóti KKÍ sem eru á grunnskólaaldri keppa í svokölluðu fjölliðamótafyrirkomulagi. Hvert lið leikur á fjórum mótum yfir veturinn og liggja keppnishelgarnar hjá hverjum flokki fyrir í byrjun tímabils.

En mótafyrirkomulagið er fljótandi; að því leyti að leitast er eftir því að lið séu alltaf að spila leiki við lið sem eru svipuð að getustigi. Í flestum flokkum eru fimm efstu liðin í A-riðli, fimm næstu í B-riðli, fimm liðin þar á eftir í C-riðli og svo framvegis. Efsta liðið í hverjum riðli færist upp um riðil, nema í A-riðli, og neðsta liðið fellur um riðil. Þannig er leitast eftir því að hvert lið sé alltaf að leika við lið sem eru svipuð að styrkleika.

Stefán segir það oft vera flókið mál að setja saman keppnishelgar, vegna þess að það liggi ekki fyrir í upphafi tímabils hvaða lið verða í hvaða riðli eftir fyrsta fjölliðamótið. Þannig þurfi að skipuleggja hvert fjöllmiðamót eftir að því næsta á undan lýkur.

„Þessa helgi, sem Valsstúlkur eiga að fara á Egilsstaði eru til að mynda þrettán mót á vegum KKÍ víðsvegar um landið,“ útskýrir Stefán. Mótin sem um ræðir eru í Garðabæ, Keflavík, Njarðvík, Hveragerði, Þorlákshöfn, Kópavogi, Grindavík, Stykkishólmi, Egilsstöðum og svo fjögur móti í Reykjavík. Skipulagið á keppnishelgunum getur verið viðkvæmt. „Til dæmis áttum við að vera með mót í einu íþróttahúsi í Reykjavík næstu helgi en þurftum frá að hverfa vegna Airwaves. Þá þurfti að færa það mót annað og út frá því upphófst keðjuverkun þar sem færa þurfti nokkur mót.“

Þeir sem skrá sig á Íslandsmót þurfa að taka þátt

Mótareglur KKÍ kveða á um það að ef lið gefur einn leik getur það ekki orðið Íslandsmeistari. Ef lið gefur tvo leiki er það dæmt úr leik í Íslandsmótinu.

„Afstaðan er þessi: Þegar þú skráir þig á Íslandsmót skuldbindur þú þig að taka þátt, sama hvar mótið er. Ef liðin geta valið hvaða mót þau fara á þá eru þau líklegri að sleppa lengri ferðalögum.“

Í körfuknattleikshreyfingunni er það þekkt að lið á suðvesturhorninu forðist lengri ferðalög en lið á landsbyggðinni eru tilneydd að ferðast oft á ári. Félög um allt land eru með öflug körfuknattleikslið. Til dæmis á Ísafirði, Egilsstöðum, Hornafirði, Sauðárkróki, Stykkishólmi og svona mætti lengi telja. 

Hefðu viljað lengri fyrirvara

Viðar segir að Valsmenn hefðu viljað lengri fyrirvara til að skipuleggja ferðlag tíu 12 ára stúlkna. Fyrirvarinn var um tvær vikur. „Auðvitað stefnum við á leysa þetta á farsælan hátt. Við stefnum á að senda lið á Egilsstaði, en það á enn eftir að ganga frá ákveðnum málum. Við teljum fyrirvarann vera of lítinn og vonum að við sjáum einhverjar breytingar á mótafyrirkomulaginu. Vonum að allir læri af þessu.“

Sömu helgi fer fram mót 11 ára stúlkna í handknattleik á Akureyri. Foreldrar barna í handboltanum vissu það fyrir tveimur mánuðum að þeir þyrftu að fara á Akureyri þessa tilteknu helgi. Mismunandi keppnisfyrirkomulag er í handbolta og körfubolta.

„Keppnisfyrirkomulagið okkar er að vissu leyti gallað,“ viðurkennir Stefán og segir að hann vilji sjá ákveðnar breytingar á því. „Ég myndi vilja skapa meiri festu í hverjir keppnisstaðirnir verða, en á sama tíma skapa sveigjanleika fyrir liðin sem geta ekki sent fullmönnuð lið út á land. Ég myndi vilja fækka leikmönnum í hverju liði og gera þannig breytingar að hver og einn leikmaður fengi fleiri mínútur inni á vellinum á sama tíma og við sköpum stöðugleika í mótafyrirkomulaginu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×