Óákveðið hvernig haldið verður upp á vitaafmælið Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 20. ágúst 2014 13:00 Ásgeir Hjálmarsson. Vísir/Jón Sigurður
Það tók tíu til fimmtán manna vinnuhóp Sigurðar Péturssonar frá Sauðárkróki einungis þrjá mánuði að reisa nýja Garðskagavita árið 1944. Hann fagnar nú 70 ára afmæli þann 10. september næstkomandi. Ekki er rótt að sigla um Garðskaga svo fljótlega varð mönnum ljós þörfin á vísiljósi þar. Árið 1884 var hlaðin grjótvarða á skaganum og sett upp í hana lukt sem lýsti sjófarendum. En Stilhoff, skipstjóri á póstskipinu Sölöven, fór svo að berjast fyrir því að reistur yrði almennilegur viti á staðnum. „Honum entist þó ekki ævi til að sjá það verða að veruleika en hann fórst við Svörtuloft á Snæfellsnesi,“ segir Ásgeir Hjálmarsson en hann var lengi umsjónarmaður Byggðasafnsins sem stendur rétt við vitana tvo á Garðskaga.Hér eru finnskir vitavinir uppi í nýja vitanum á Garðskaga sem þrátt fyrir viðurnefnið er kominn á virðulegan aldur.mynd/friðrik ómarGamli vitinn var síðan reistur árið 1897 og segir Ásgeir að þá hafi hann verið um hundrað metra uppi í landi. Það er ótrúleg tilhugsun fyrir þá sem sjá hann í dag umluktan greipum Ægis á skeri við flæðarmálið. Landbrot var svo ört að árið 1912 varð að gera gangbrú út í vitann en þegar brim voru mikil gat vitavörður hæglega orðið veðurtepptur úti í vitanum. Nýi vitinn, sem svo er kallaður á Garðskaga þrátt fyrir virðulegan aldur, var vitanlega reistur lengra uppi í landi og hann varð að vera hár því nesið er lágt. Hann er tæpir 29 metrar og er því hæsti viti landsins, að sögn Ásgeirs. Síðasti vitavörður þar er reyndar viðmælanda okkar vel kunnur því það er tengdafaðir Ásgeirs, Guðni Ingimundarson. Hann hætti árið 2004. Nú er afar vinsælt meðal ferðamanna að fá að fara upp í vitann en Ásgeir bendir á að það sé ekkert nýtt að hann laði forvitna að. „Til er pappírsspjald frá Sigurbergi Þorleifssyni sem var vitavörður frá 1951 til 1977 þar sem á stendur að það kosti eina krónu að fá að fara upp í vitann,“ segir Ásgeir. „Sá peningur rann síðan í sjúkrasjóð vitavarða.“ Að sögn Magnúsar Stefánssonar, bæjarstjóra í Garði, er ekki búið að ákveða hvernig eða hvort haldið verði upp á áfangann þann 10. september.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Sjá meira