Vaktavinnufólk er dapurt og sefur og borðar verr en aðrir Ingvar Haraldsson skrifar 19. september 2014 07:15 Starfsfólk í vaktavinnu upplifir oftar depurð, á erfiðara með svefn og borðar verr en aðrir. Fréttablaðið/vilhelm
Íslendingar sem vinna vaktavinnu eru við verri heilsu en þeir sem vinna dagvinnu. „Vaktavinnufólk sefur skemur en dagvinnufólk, á erfiðara með að sofna, vaknar oftar á nóttunni og er oftar greint með síþreytu,“ segir Nanna Ingibjörg Viðarsdóttir, sérfræðingur hjá Embætti landlæknis, um niðurstöður lokaritgerðar sinnar sem fjallar um áhrif vaktavinnu á heilsu og líðan fólks. Niðurstöðurnar eru byggðar á svörum þrjú þúsund Íslendinga í könnuninni Heilsa og líðan Íslendinga sem Embætti landlæknis gerð árið 2012. Mataræði þeirra sem vinna á vöktum er verra en annarra. „Vaktavinnufólk borðar oftar skyndibita og drekkur oftar gos, en borðar sjaldnar grænmeti samanborið við dagvinnufólk,“ skrifar Nanna í ritgerðinni.Nanna Ingibjörg Viðarsdóttir.Andleg heilsa vaktavinnufólks er einnig lakari en annarra. „Það upplifir oftar depurð og síður að eitthvað merkilegt gerist á hverjum degi,“ segir í ritgerðinni. Þar að auki er samband við maka verra en hjá fólki sem vinnur dagvinnu. Þrátt fyrir það tekur vaktavinnufólk sér ekki fleiri veikindadaga en aðrir. Athygli vekur að mun lægra hlutfall Íslendinga vinnur vaktavinnu en annarra þjóða. Um sjö prósent Íslendinga vinna vaktavinnu miðað við um tuttugu prósent annars staðar. Nanna segir ákveðinn hóp fólks einkum vilja vinna vaktavinnu. „Það virðist aðallega vera ungt fólk sem ekki er í samböndum og ekki á börn sem sækir í vaktavinnu.“ Nanna segir mikilvægt fyrir atvinnurekendur að velja fólk eftir því hvort það ráði við vaktavinnu og finna hvaða vaktavinnukerfi hentar því best, enda bendi rannsóknir til þess að um fimmtungur fólks geti ekki unnið vaktavinnu vegna áhrifa vinnunnar á heilsuna. Þar að auki sé mikilvægt að vinnuveitendur virði reglur um hvíldartíma. „Ef þú ert þreyttur eykur það líkurnar á því að þú gerir mistök í vinnunni því einbeitingin minnkar sem getur valdið vinnuslysum eða slysum á leiðinni heim,“ segir Nanna. Vaktavinnufólk getur gert ýmislegt sjálft til þess að lágmarka skaðleg áhrif vaktavinnu á heilsuna, að sögn Nönnu. Hægt sé að notast við dagsljósalampa, leggja sig fyrir vaktir, hreyfa sig meira og borða hollari mat.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira