100 spjaldtölvur í leikskóla í Kópavogi Stefán Árni Pálsson skrifar 19. september 2014 13:23 Hafdís Hafsteinsdóttir skólastjóri leikskólans Efstahjalla og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstóri Kópavogsbæjar með nemendum leikskólans við afhendingu spjaldtölva.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, afhenti leikskólastjórum bæjarins 100 spjaldtölvurnar og 20 fartölvur á leikskólanum Efstahjalla í dag. Spjaldtölvurnar voru afhentar með fjölmörgum smáforritum, öppum, sem nýtast í kennslu á leikskólastigi en þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Eftir afhendinguna í dag verða haldin námskeið fyrir alla kennara í leikskólum Kópavogs og framhaldsnámskeið fyrir þá kennara sem eru lengra komnir . „Afhending spjaldtölva eru kaflaskil í leikskólastarfi í Kópavogi. Spjaldtölvurnar eru fyrirtaks viðbót við þann fjölbreytta efnivið sem leikskólarnir bjóða upp á til að örva börn í námi og leik.Spjaldtölvuvæðing leikskólanna er líka í góðu samræmi við þá stefnu meirihlutans að skólar í Kópavogi séu í fremstu röð. Öflug og rétt notkun upplýsingatækni á öllum skólastigum styrkir nemendur okkar, “ sagði Ármann Kr. Ólafsson við tækifærið. Afhending spjaldtölvanna helst í hendur við uppsetningu þráðlauss nets í leik- og grunnskólum Kópavogs. Nettengin leikskólanna í Kópavogi, sem eru 19 talsins, var stækkuð þrefalt árið 2013 og er uppsetningu þráðlauss nets nú lokið í öllum nema tveimur leikskólum Kópavogs. Þráðlaust net eykur mjög á notkunarmöguleika spjaldtölva og fartölva í skólastarfi. Í fyrra voru auk þess allar borðtölvur leikskólanna uppfærðar í vinnurýmum kennara og hjá stjórnendum. Um er að ræða samtals 100 öflugar borð- og fartölvur. Kostnaður við uppsetningu á þráðlausu neti og kaup á búnaði fyrir leikskóla eru um 30 milljónir króna á þessu ári. Í þeirri upphæð er einnig kostnaður við lagfæringar á lögnum sem reyndust nauðsynlegur undanfari uppsetningarinnar.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Írisi Elvu Tíu milljarða króna verk en ljósastýrð gatnamót Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Sjá meira