Eykur áhuga og sköpunarþörfina Starri Freyr Jónsson skrifar 11. september 2014 16:37 ,,Ég hef tekið eftir því hvernig spjaldtölvan hvetur krakka til tónlistarsköpunar,“ segir Vignir Rafn Hilmarsson, bassaleikari og tónlistarkennari. Vísir/Valli
Spjaldtölvur hafa valdið byltingu á mörgum sviðum samfélagsins undanfarin ár. Útbreiðsla þeirra er mikil hérlendis og margar starfsstéttir hafa tekið þær í þjónustu sína með margvíslegum hætti. Meðal þeirra eru tónlistarmenn og tónlistarkennarar sem nýta spjaldtölvur við tónlistarsköpun, kennslu og á tónleikum. Meðlimir rokksveitarinnar góðkunnu Agent Fresco tilheyra þessum hópi en Vignir Rafn Hilmarsson, bassaleikari sveitarinnar, notar meðal annars spjaldtölvu á tónleikum. „Við höfum aðeins nýtt okkur spjaldtölvur þegar við semjum en helst notum við þær þegar við spilum á tónleikum. Þar notum við ýmis forrit eins og iGrand Piano, Animoog og SoundPrism.“ Vignir starfar einnig sem kennari í Skólahljómsveit Grafarvogs þar sem hann sér um þróunarverkefni sem snýr að innleiðingu spjaldtölva í tónlistarkennslu. Þar nýtast þær á marga vegu auk þess þegar hann kennir börnum og unglingum á bassa. „Í tónmennt læt ég krakkana búa til trommutakta og semja gítarhljóma. Þannig vinna hóparnir saman og semja tónlist. Einnig blöndum við mikið saman tónlist og hljómum úr spjaldtölvu og alvöru hljóðfærum. Sumir nemenda minna kunna á hljóðfæri og þá býr kannski einn til trommutakt í tölvunni og annar spilar inn á með rafmagnsgítar.“ Þegar Vignir kennir á bassa hjálpar spjaldtölvan líka mikið og gefur kennslunni mun meiri möguleika, ekki síst þegar krakkarnir eru farnir að missa áhugann. „Margir nemenda minna hafa aldrei spilað í hljómsveit og því get ég auðveldlega útbúið trommutakta og gítar þar sem þeir spila með á bassann sinn. Þannig fá þeir tilfinninguna fyrir því að spila í hljómsveit og um leið verður þessi upplifun vonandi frekari hvatning til að halda áfram á sömu braut.“ Spjaldtölvan nýtist einnig vel fyrir þann hóp sem hefur ekki tök á að læra á hefðbundin hljóðfæri, til dæmis einhverfa krakka. „Ég hef tekið eftir því hvernig spjaldtölvan hvetur krakka til tónlistarsköpunar sem ekki hafa tök á að læra á hefðbundið hljóðfæri af ýmsum ástæðum. Það er mjög mikil upplifun fyrir krakkana og mig sem kennara þegar til verður tónlist með hjálp spjaldtölvunnar.“ Fjölmörg ókeypis og ódýr forrit eru til á spjaldtölvur sem gera fólki kleift að semja eigin tónlist án þess að hafa tónlistarlegan bakgrunn. „Krakkar og unglingar geta til að mynda unnið með auðvelt forrit sem heitir Garage Band. Þar er hægt að spila inn gítar, bassa, trommur og einnig syngja. Þeir sem eru lengra komnir geta nýtt sér flóknari forrit og má nefna þar til dæmis Animoog.“ Hann segir frekar einfalt að læra inn á þessi forrit og semja tónlist þótt hljóðfærakunnátta sé ekki til staðar. „Reyndar mæli ég eindregið með því að börn og unglingar læri á hljóðfæri þar sem ekkert kemur í stað þess að hafa hljóðfærið sjálft í höndunum, semja og spila tónlist þrátt fyrir að forrit og spjaldtölvur búi yfir öllum þessum möguleikum.“
Mest lesið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Leikarapar selur í 101 Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Sjá meira