Bjargfuglar eiga mjög undir högg að sækja Svavar Hávarðsson skrifar 17. nóvember 2014 07:00 Stofnar svartfugla gefa eftir víða í kringum landið. mynd/fuglavernd
Rannsóknir Náttúrustofu Norðausturlands á ástandi sjófuglastofna sýna óheillaþróun, bæði til skamms og lengri tíma litið. Fækkun einstakra tegunda er slík að búast má við að þær hverfi með öllu í stórum sjófuglabyggðum. Á heimasíðu sinni greina starfsmenn Náttúrustofunnar frá reglubundinni vöktun sjófuglastofna á Norðausturlandi undanfarin ár. Vöktunin felur m.a. í sér árlegar talningar í Skoruvíkurbjargi á Langanesi og í Grímsey. Þar segir að talningar í sumar sýni t.d. að í Skoruvíkurbjargi bendi niðurstöður til 42% fækkunar stuttnefju milli ára. Til lengri tíma litið sýna niðurstöður talninga þar fram á langvarandi fækkun tegundarinnar. Er því svo komið að stuttnefju hefur nú fækkað um 82% í Skoruvíkurbjargi frá 1986. Haldist þessi þróun áfram má leiða líkur að því að stuttnefjur hverfi úr Skoruvíkurbjargi eftir u.þ.b. fimm ár. Talningar sýna einnig verulega snarpa fækkun langvíu (29% og 21%) á báðum stöðum. Þar segir jafnframt að ritu hefur, líkt og stuttnefju, fækkað mikið í Skoruvíkurbjargi frá því 1986. Fjöldi ritu þar á nýliðnu sumri var sá lægsti frá upphafi talninga og reyndist vera rétt um 16 prósent af því þegar mest var árið 1994. Minniháttar sveiflur hafa verið í Grímsey síðan 2009 og virðist ritu fjölga þar frekar en hitt. Frá því reglubundnar talningar hófust þar hafa ekki verið fleiri ritur á talningarsniðum í Grímsey en á nýliðnu sumri.
Mest lesið Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Innlent Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Innlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Sjá meira