Sakar framkvæmdastjóra Keilis um langvinnt einelti Viktoría Hermannsdóttir skrifar 13. nóvember 2014 14:24 Maðurinn hafði starfað hjá Keili frá 2008. Hann segir eineltið hafa byrjað eftir að hann fór fram á launaleiðréttingu fyrir hönd starfsmanna sem trúnaðarmaður þeirra.
Starfsmaður hjá Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, sakar framkvæmdastjórann, Hjálmar Árnason, um langvinnt einelti gagnvart sér. Þetta kemur fram í bréfi sem lögmaður starfsmannsins sendi fyrir hans hönd til yfirstjórnar Keilis í byrjun september. Starfsmaðurinn hefur starfað á Keili frá árinu 2008 og var trúnaðarmaður starfsmanna frá árinu 2011. Samkvæmt bréfinu hófst hið meinta einelti eftir að hann fór fram á leiðréttingu launakjara hjá félaginu fyrir hönd starfsmanna. Í kjölfarið hafi hann fundað með fjármálastjóra félagsins og daginn eftir þann fund hafi framkvæmdastjórinn boðað hann á sinn fund þar sem hann, samkvæmt bréfinu: „hellti sér yfir hann með óviðeigandi fúkyrði og hótunum.“ Í kjölfarið hafi eineltið ágerst og í sjö mánuði hafi starfsmaðurinn mátt „þola ótrúlega aðför“ af hálfu framkvæmdastjórans. Eineltið hafi meðal annars falist í því að framkvæmdastjórinn hafi lagt sig fram um að „niðurlægja, gera lítið úr, móðga, særa, mismuna og ógna“ honum, að því er fram kemur í bréfinu. Að lokum fór hann á fund með framkvæmdastjóra og fjármálastjóra vegna eineltisins þar sem sá fyrrnefndi á að hafa spurt hvort hann vildi ekki leita sér að nýrri vinnu þar sem honum liði augljóslega illa í vinnunni. Starfsmaðurinn fór eftir þennan fund og ræddi við fjármálastjóra þar sem hann tjáði honum að hann væri að hugsa um að segja upp, þar sem hann gæti ekki unnið við þessar aðstæður lengur. Hann skilaði hins vegar ekki inn uppsagnarbréfi heldur fór til læknis sem mat hann óvinnufæran vegna ástandsins. Í bréfinu kemur fram að starfsmaðurinn sé „í miklu áfalli vegna þess langvarandi ástands sem hann hefur mátt þola og mun ekki mæta til vinnu að læknisráði við óbreyttar aðstæður enda er svo komið að vanlíðan á vinnustað lýsir sér í alvarlegum líkamlegum einkennum og hefur læknir rakið þau til langvarandi álags,“ og að læknir hafi beðið hann um að koma sér úr ástandinu nú þegar.Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis.Lögmaður starfsmannsins sendi bréfið fyrir hönd hans þann 7. september síðastliðinn. Þar sem engin svör höfðu borist við bréfinu ítrekaði hann með öðru bréfi 26. október að fundin yrði lausn í málinu. Því bréfi var svarað og í svarinu kom fram að rannsókn væri hafin á málinu. Sú rannsókn verður framkvæmd af sálfræðingum og hefst í lok mánaðarins. Um síðustu mánaðamót fékk starfsmaðurinn ekki greidd laun þrátt fyrir að vera með læknisvottorð upp á það að hann gæti ekki verið í vinnunni vegna ástandsins. Hann hafði þá fengið sendan starfslokasamning sem hann hefur ekki undirritað þar sem hann telur starfslokin ekki vera á eðlilegum forsendum. Hjálmar Árnason vildi ekki tjá sig um mál einstakra starfsmanna þegar eftir því var leitað. Hann sagði málið sorglegt og dapurlegt. „Þetta er fyrst og fremst leiðinlegt mál,“ segir Hjálmar.
Mest lesið Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Innlent Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Innlent Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Innlent Þrír handteknir á Þingvöllum Innlent Fleiri fréttir Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Neitaði að borga og sló vagnstjórann Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Huga þurfi líka að heimferðinni Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Þrír handteknir á Þingvöllum Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Manndráp í Kópavogi og styttist óðfluga í sólmyrkvann Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Sjá meira