Fótbolti

Sölvi Geir hélt hreinu í sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sölvi Geir og félegar héldu hreinu í dag.
Sölvi Geir og félegar héldu hreinu í dag. Vísir/Heimasíða Ural
Sölvi Geir Ottesen og félagar í Ural gerðu sér lítið fyrir og skelltu Spartak Moskvu á heimavelli í rússnesu úrvalsdeildinni í dag.

Aleksandr Erohin kom Ural yfir níu mínútum fyrir hálfleik og Pablo Fontanello tvöfaldaði forystuna á 65. mínutu. Þannig fóru leikur.

Sölvi spilaði allan leikinn í vörn Ural sem var einungis að vinna sinn annan leik á tímabilinu, en liðið er sem stendur með sjö stig í tólfta sæti af sextán liðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×