Ógnaði fólki með golfkylfu í Grafarvogi Atli Ísleifsson skrifar 21. september 2014 09:38 Tilkynnt var um eld í strætóskýli við Sæbraut síðdegis í gær. Vísir/Anton
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að hafa afskipti af manni sem ógnaði fólki með golfkylfu við fjölbýlishús í Grafarvogi síðdegis í gær. Maðurinn var handtekinn skömmu síðar og færður á lögreglustöð þar sem hann var vistaður í fangageymslu sökum ástands. Um hálf níu leytið í gærkvöldi var lögreglu tilkynnt um hópslagsmál í vesturbæ Kópavogs. Í dagbók lögreglu kemur fram að tilkynnandi segi einni bifreiðinni á vettvangi hafa verið ekið á fólk. „Skráð umferðaróhapp en málsatvik liggja ekki fyrir að svo stöddu. Einn maður handtekinn grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum áfengis/fíkniefna og akstur án réttinda þ.e. hefur aldrei öðlast ökuréttindi. Maðurinn vistaður í fangageymslu meðan ástand lagast og hægt verður að ræða við hann.“ Í nótt var svo tilkynnt um ölvaðan mann í tökum dyravarða í Austurstræti. „Maðurinn hafði verið að reyna að stofna til slagsmála. Maðurinn handtekinn og færður á lögreglustöð, síðan vistaður í fangageymslu meðan ástand hans lagast.“ Skömmu síðar var svo tilkynnt um líkamsárás við Lækjargötu. „Árásarþoli með sár á höfði og skerta meðvitund, fluttur á Slysadeild. Maður handtekinn á vettvangi grunaður um árásina og vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn máls,“ segir í dagbók lögreglu. Meðal annarra mála má nefna að síðdegis í gær var tilkynnt um eld í strætóskýli við Sæbraut. Slökkvilið var sent á vettvang og slökkti eldinn en skýlið er sagt ónýtt. Þá þurfti lögregla einnig að sinna nokkrum málum vegna aksturs án réttinda og undir áhrifum áfengis.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira