Frægasti stóðhestur Íslands fallinn Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 21. september 2014 12:12 Indriði Ólafsson frá Þúfu, ræktandi Orra. Mynd/Magnús Hlynur Hreiðarsson
Orri frá Þúfu, þekktasti stóðhestur landsins, er fallinn. Orri varð tuttugu og átta vetra gamall og var dýrasti stóðhestur landsins síðastliðin fimmtán til tuttugu ár. Afkvæmi Orra voru um 1.320 talsins þegar hann var felldur en það eru að meðaltali um sextíu afkvæmi á ári síðan hann var þriggja vetra. Folatollar undir hann seldust fyrir um 500 þúsund krónur en áætlað er að verðmæti afkvæma hans sé um tveir milljarðar króna. Anna Berglind Indriðadóttir á Þúfu var einn eigenda Orra. Hún segir Orra hafa verið mikinn karakter og óvenjugáfaða skepnu. „Orri var einstakur og það vissu allir hver hann var, jafnvel þeir sem ekki voru í hestamennsku,“ segir hún. Orri var margverðlaunaður og frægur um allan heim, en Anna segir að erlendir hestaáhugamenn hafi oft komið í sérstakar pílagrímsferðir hingað til lands til að berja hann augum. Orri hlaut meiðsli á hálsi í mars á þessu ári og háði það honum nokkuð í hreyfingum. Í framhaldinu var ákveðið að halda ekki hryssum undir hann í sumar. Nýlega var svo gerð úttekt á stöðu mála og þar sem engin breyting var sjáanleg ákváðu stjórnarmenn í hlutafélagi um Orra, Orrafélaginu, að hér færi best á að enda ævintýrið mikla sem ævi Orra hefur verið. Orri var heygður á fæðingarstað sínum Þúfu, þar sem hann bjó alla tíð. Anna segir ákveðnu tímabili nú lokið. „Það er ótrúlega skrítið að hugsa til þess að hann sé farinn þar sem þetta er orðinn svo langur tími. Okkar líf hefur að miklu leyti snúist um þetta síðustu áratugi og það er auðvitað mikil eftirsjá að honum“.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira