Mikið hvassviðri gengur yfir vestanvert landið Atli Ísleifsson skrifar 21. september 2014 15:11 Mjög hvasst hefur verið á suðvestanverðu og vestanverðu landinu í dag. Vísir/Anton „
Vindurinn hefur verið hressilegur uppi í Skálafelli. Meðalvindurinn hefur farið í 30 metra á sekúndu þar og hviðurnar í 35,“ segir Árni Sigurðsson, veðurfræðingur á Veðurstofunni, í samtali við Vísi, en mjög hvasst hefur verið á suðvestanverðu og vestanverðu landinu í dag. Árni segir veðrið á landinu vera mjög líkt því og spáð var. „Mér sýnist stefna í að það verði víða 15 til 20 metra vindur suðvestan og vestanlands. Það getur sums staðar farið í storm, farið í 23 metra vind. Það er ennþá að bæta í vindinn.“ Árni segir að það muni einnig bæta svolítið í úrkomuna með kvöldinu. „Svo breytist yfir í suðvestanátt sem er mun hægari, svona 8 til 13 metrar á sekúndu. Það er aðallega hvasst á suðvestan og vestanverðu landinu en mun hægara austantil. Svo á eitthvað eftir að hvessa þar, en það verður ekki eins hvasst eins og er á þessu svæði,“ og vísar þar til suðvesturhorns landsins. Að sögn Árna hefur einnig hvesst mikið við veginn undir Hafnarfjalli nú síðdegis. „Hviðurnar hafa farið upp í 37 metra á sekúndu en meðalvindhraðinn hefur þó ekki verið nema um 12 metrar á sekúndu. Það er voðalega hviðótt þarna eins og er oft undir fjöllum.“
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira