Dæmdur í tíu ára fangelsi: Braut kynferðislega á átta ára drengjum og þroskahamlaðri konu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. desember 2014 15:22 Jóhannes Óli Ragnarsson kynnti eineltissamtökin til leiks í ágúst 2012.
Jóhannes Óli Ragnarsson, 32 ára karlmaður, hefur verið dæmdur í tíu ára fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir frelsissviptingu, sifskaparbrot og kynferðisbrot gegn tveimur drengjum og kynferðisbrot gegn þroskahamlaðri konu. Dómur var kveðinn upp í dag en hefur ekki verið birtur á vef héraðsdóms enn sem komið er. Brotin áttu sér öll stað á Akureyri. Maðurinn nýtti sér andlega fötlun konunnar og neyddi hana til munnmaka. Varðar það brot á 2. málsgrein 194. greinar almennra hegningarlaga þar sem segir að það teljist til nauðgunar að notfæra sér „geðsjúkdóm eða aðra andlega fötlun manns til þess að hafa við hann samræði eða önnur kynferðismök.“ Maðurinn hafði setið í gæsluvarðhaldi frá því um miðjan ágúst þegar hann var handtekinn grunaður um að hafa brotið gegn drengjunum tveimur. Í greinargerðum lögreglu sem fylgdu endurteknum kröfum um gæsluvarðhald yfir manninum kom fram að maðurinn væri gefið að sök að hafa tælt tvo drengi inn í íbúð sína. Þeir voru þá í boltaleik utan við heimili hans. Að sögn drengjanna kom maðurinn út og sakaði þá um að hafa sparkað bolta í bíl sinn. Hann mun hafa hótað drengjunum að hringja á lögregluna nema að þeir kæmu með honum inn og ræddu málið.Læknisskoðun leiddi í ljós að báðir drengirnir voru með áverka eftir rassskelli og kom fram í gæsluvarðhaldsúrskurðinum að annar drengurinn hefði "einnig haft aðra áverka sem samrýmist sögu hans.Vísir/GettyFór með fingur og kynfæri í afturenda drengsins Þegar inn var komið bar annar drengjanna því fram að maðurinn hefði girt niður um þá. Hinn drengurinn segir að maðurinn hafi skipað þeim að taka sjálfir buxurnar niður um sig. Þá mun hann hafa skipað drengjunum að rassskella hvor annan. Hann mun einnig hafa skipað drengjunum að slá hvorn annan fastar þar sem honum fannst höggin vera of létt. Maðurinn mun síðan hafa rasskellt þá sjálfur og slegið þá ítrekað með flötum lófa að því er fram kemur í vitnisburði drengjanna. Annar drengurinn bar því við að maðurinn hefði sett kynfæri sín í munn hins drengsins. Þá hafi maðurinn borið olíu eða krem á rass drengsins sjálfs, farið þar fyrst með fingur inn en síðar kynfæri sín. Hinn drengurinn sagðist ekki muna hvað gerst hefði eftir rassskellingarnar.Maðurinn bar við minnisleysi Læknisskoðun leiddi í ljós að báðir drengirnir voru með áverka eftir rassskelli og kom fram í gæsluvarðhaldsúrskurðinum að annar drengurinn hefði „einnig haft aðra áverka sem samrýmist sögu hans. Sá drengur staðhæfði einnig að drengirnir hafi ítrekað spurt sakborning hvort þeir mættu fara heim en hann sagt þeim að þegja.“ Sýslumaður taldi að miðað við frásagnir drengjanna og foreldra þeirra hafi drengirnir verið í um hálfa klukkustund inni hjá manninum. Maðurinn viðurkenndi að hafa rassskellt þá en bar við minnisleysi við skýrslutöku hjá lögreglu aðspurður um aðra hluti sem hefðu gerst í íbúðinni. Hann sagði þó drengina hafa fylgt sér í íbúðina sjálfviljugir. Jóhannes Óli stofnaði árið 2012 eineltissamtökin Sólskinsbörn. Yfirlýst markmið samtakanna var að berjast gegn einelti en Jóhannes sagðist í viðtali við DV þekkja á eigin skinni hversu hrikalegt einelti getur verið.
Tengdar fréttir Ákærður fyrir kynferðisbrot: Áfram í gæsluvarðhaldi Aðalmeðferð í máli karlmanns sem ákærður er fyrir kynferðisbrot gegn tveimur átta ára drengjum lauk í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær. Maðurinn verður í gæsluvarðhaldi til 14. nóvember, eða þar til dómur fellur. 24. október 2014 10:06 Meint kynferðisbrot á Akureyri: Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald Sá grunaði, karlmaður á þrítugsaldri, á að hafa brotið gegn tveimur átta ára drengjum. 19. ágúst 2014 20:57 Meint kynferðisbrot á Akureyri: Varðhald framlengt yfir þeim grunaða Maðurinn sem grunaður er um brot gegn tveimur drengjum verður í haldi til 19. september. 25. ágúst 2014 11:31 Gæsluvarðhald yfir meintum barnaníðingi framlengt Gæsluvarðhald yfir rúmlega þrítugum manni sem grunaður er um kynferðisbrot gegn tveimur átta ára drengjum á Akureyri hefur verið framlengt til 14. desember. 19. nóvember 2014 23:34 Einnig grunaður um brot gegn þroskaskertri konu Ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur drengjum og þroskaskertri konu. Brotin geta varðað allt að tíu ára fangelsi. 26. september 2014 15:34 Grunaður um kynferðisbrot gegn tveimur drengjum Lögreglan á Akureyri hefur handtekið rúmlega þrítugan karlmann og úrskurðað í gæsluvarðhald. 15. ágúst 2014 12:22 Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira
Ákærður fyrir kynferðisbrot: Áfram í gæsluvarðhaldi Aðalmeðferð í máli karlmanns sem ákærður er fyrir kynferðisbrot gegn tveimur átta ára drengjum lauk í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær. Maðurinn verður í gæsluvarðhaldi til 14. nóvember, eða þar til dómur fellur. 24. október 2014 10:06
Meint kynferðisbrot á Akureyri: Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald Sá grunaði, karlmaður á þrítugsaldri, á að hafa brotið gegn tveimur átta ára drengjum. 19. ágúst 2014 20:57
Meint kynferðisbrot á Akureyri: Varðhald framlengt yfir þeim grunaða Maðurinn sem grunaður er um brot gegn tveimur drengjum verður í haldi til 19. september. 25. ágúst 2014 11:31
Gæsluvarðhald yfir meintum barnaníðingi framlengt Gæsluvarðhald yfir rúmlega þrítugum manni sem grunaður er um kynferðisbrot gegn tveimur átta ára drengjum á Akureyri hefur verið framlengt til 14. desember. 19. nóvember 2014 23:34
Einnig grunaður um brot gegn þroskaskertri konu Ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur drengjum og þroskaskertri konu. Brotin geta varðað allt að tíu ára fangelsi. 26. september 2014 15:34
Grunaður um kynferðisbrot gegn tveimur drengjum Lögreglan á Akureyri hefur handtekið rúmlega þrítugan karlmann og úrskurðað í gæsluvarðhald. 15. ágúst 2014 12:22