Gæsluvarðhald yfir meintum barnaníðingi framlengt Atli Ísleifsson skrifar 19. nóvember 2014 23:34 Akureyri. Vísir/Pjetur
Gæsluvarðhald yfir rúmlega þrítugum manni sem grunaður er um kynferðisbrot gegn tveimur átta ára drengjum á Akureyri hefur verið framlengt til 14. desember, dagsins þegar dómur fellur í málinu. Vikudagur greinir frá þessu.Maðurinn er einnig ákærður fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertri konu. Manninum er haldið í gæsluvarðhaldi vegna alvarleika brotanna sem hann er ákærður fyrir en þau geta varðað allt að 10 ára fangelsi samkvæmt refsiramma íslenskra hegningarlaga. Í dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra, sem Hæstiréttur staðfesti þann 28. ágúst sl., er manninum gefið að sök að hafa tælt tvo átta ára drengi inn í íbúð sína, en þeir voru í boltaleik fyrir utan heimili hans. Að sögn drengjanna kom maðurinn út og sakaði þá um að hafa sparkað bolta í bíl sinn. Hann mun hafa hótað drengjunum að hringja á lögregluna nema að þeir kæmu með honum inn og ræddu málið.Þegar inn var komið segir annar drengjanna að maðurinn hafi girt niður um þá. Hinn drengurinn segir að maðurinn hafi skipað þeim að taka sjálfir buxurnar niður um sig. Þá mun hann hafa skipað drengjunum að rassskella hvor annan. Hann mun einnig hafa skipað drengjunum að slá hvorn annan fastar þar sem honum fannst höggin vera of létt. Maðurinn mun síðan hafa rassskellt þá sjálfur og slegið þá ítrekað með flötum lófa að því er fram kemur í vitnisburði drengjanna. Læknisskoðun leiddi í ljós að báðir drengirnir voru með áverka eftir rassskelli og kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurðinum að annar drengurinn hafi „einnig haft aðra áverka sem samrýmist sögu hans. Sá drengur staðhæfi einnig að drengirnir hafi ítrekað spurt sakborning hvort þeir mættu fara heim en hann sagt þeim að þegja.“ Sýslumaður telur, miðað við frásagnir drengjanna og foreldra þeirra, að þeir hafi verið í um hálfa klukkustund inni hjá manninum. Maðurinn hefur viðurkennt að hafa rassskellt þá en ber við minnisleysi þegar hann er spurður um aðra hluti sem gerst hafi í íbúðinni. Hann segir þó drengina hafa fylgt sér í íbúðina sjálfviljugir.
Tengdar fréttir Meint kynferðisbrot á Akureyri: Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald Sá grunaði, karlmaður á þrítugsaldri, á að hafa brotið gegn tveimur átta ára drengjum. 19. ágúst 2014 20:57 Einnig grunaður um brot gegn þroskaskertri konu Ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur drengjum og þroskaskertri konu. Brotin geta varðað allt að tíu ára fangelsi. 26. september 2014 15:34 Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Fleiri fréttir Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Sjá meira
Meint kynferðisbrot á Akureyri: Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald Sá grunaði, karlmaður á þrítugsaldri, á að hafa brotið gegn tveimur átta ára drengjum. 19. ágúst 2014 20:57
Einnig grunaður um brot gegn þroskaskertri konu Ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur drengjum og þroskaskertri konu. Brotin geta varðað allt að tíu ára fangelsi. 26. september 2014 15:34