Stór hluti bata á ríkissjóði fer í leiðréttinguna Heimir Már Pétursson skrifar 20. nóvember 2014 19:19
Stór hluti af bættri afkomu ríkissjóðs upp á 42 milljarða króna á þessu ári fer til að greiða hraðar niður skuldbindingar ríkissjóðs vegna leiðréttingarinnar. Formaður fjárlaganefndar gagnrýnir óvænt útgjöld vegna kostnaðar við rannsóknarskýrslu Alþingis um sparisjóðina. Ríkissjóður stendur mun betur á þessu ári en fjárlög ársins gerðu ráða fyrir og því skapast borð fyrir báru. Í fjáraukalagafrumvarpi fyrir þetta ár kemur fram að útgjöld ríkissjóðs aukast um 16,9 milljarða og tekjur hans um 16,3 milljarða. Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, segir stóru fréttirnar að afgangur á rekstri ríkissjóðs aukist um 42 milljarða.Hefði ekki verið eðlilegt að taka þennan bata og greiða niður skuldir ríkissjóðs?„Við erum að ráðstafa broti af þessu til að hraða skuldaniðurfellingartillögunum og það er að koma hraðar til heimilanna en áætlað var. Ég er mjög ánægð með það en svo erum við að safna upp afgangi til þess að fara að greiða niður skuldir ríkissjóðs,“ segir Vigdís. Á útgjaldahlið gagnrýnir Vigdís m.a. óvæntan og aukinn kostnað við gerð rannsóknarskýrslu Alþingis um sparisjóðina og Íbúðalánasjóðs upp á 130 milljónir króna, „Mestu vonbrigðin eru þessi bakreikningur fyrir rannsóknarnefndir Alþingis sem er nú þegar farinn að slaga allt í allt upp í einn og hálfan milljarð. En við erum að tala um að kostnaðurinn við skýrsluna um sparisjóðina og Íbúðalánasjóð sé að verða þúsund milljónir. Allir héldu að það væri búið að afgreiða það fyrir fullt og allt,“ segir Vigdís. Þá hefur eldgosið í Holuhrauni kostað sitt en í fjáraukalögum fyrir þetta ár er gert ráð fyrir að um 350 milljónir fari í aukin framlög til sjö stofnana vegna kostnaðar við eldgosið. Stjórnarandstaðan bendir á að um helmingur batans sé til kominn vegna breytinga á skuld ríkissjóðs við Seðlabankann og gagnrýnir hvernig því sem eftir stendur af batanum er ráðstafað. Breytingin á skuldinni við Seðlabankann bætir stöðu ríkissjóðs um 21 milljarða króna. En til þess að breyting á skuldabréfi ríkissjóðs hjá bankanum geti náð fram að ganga þarf að breyta lögum um Seðlabankann en mælt var fyrir frumvarpi þar að lútandi á miðvikudag. Þá gagnrýnir stjórnarandstaðan að um 16 milljarðar af bættri stöðu farið í að hraða greiðslum vegna skuldaleiðréttingarinnar. „Við hefðum viljað taka þennan bata yfir á árið 2015 og nýta hann i það að styrkja heilbrigðiskerfið, menntakerfið og aðra innviði samfélagsins sem standa illa,“ segir Oddný G. Harðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar. En hún mælti fyrir nefndaráliti minnihlutans í fjárlaganefnd um fjáraukalögin á Alþingi í dag. Hún nefnir að um 300 milljónir í bættri afkomu ríkissjóðs megi rekja til minni útgjalda til barnabóta. Þegar til hafi staðið að lækka barnabætur við fjárlagagerðina fyrir þetta ár skömmu fyrir áramót í fyrra hafi því verið mótmælt harðlega innan og utan Alþingis og því hætt við lækkunina. Ríkisstjórninni hafi hins vegar tekist að ná lækkuninni fram með tekjuviðmiðum sem lækkað hafi útgreiðslu barnabóta.
Mest lesið Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Innlent Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Innlent Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Fleiri fréttir Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Sjá meira