Segir Bjarna hafa valdið upplausn á Landspítala við gerð fjárlaga Hjörtur Hjartarson skrifar 20. nóvember 2014 19:39
Formaður Samfylkingarinnar sagði fjármálaráðherra hafa valdið upplausn á Landspítalanum við gerð fjárlaga síðasta árs og útlit væri fyrir að hið sama sé upp á teningnum núna.Greint var frá því á forsíðu Fréttablaðsins í dag að í undirbúningi hjá Landspítalanum eru hagræðingaraðgerðir sem miða að því að lækka rekstarkostnað hans um 1,5 milljarð króna eins og kveðið er á um í fjárlögum næsta árs. Það þýðir að segja þyrfti upp allt að eitthundrað starfsmönnum. Málið var til umræðu á Alþingi í dag. „Það er athyglisvert að þetta er annað árið í röð sem hæstvirtur fjármálaráðherra klúðrar fjárlagagerð hvað varðar Landspítalann. Í fyrra ollu fjárlagatillögur hans því að það varð líka upplausnarástand þá á Landspítalanum og þáverandi forstjóri spítalans hraktist úr starfi. Það er því spurning hvort fjármálaráðherra geti látið skipa sérstakan seturáðherra til að búa til fjárlagafrumvarp ef hann ræður ekki við það sjálfur,“ sagði Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar á Alþingi í dag. Fjármálaráðherra svaraði því til að auðvelt væri að gera sig breiðan og vísa allri ábyrgð á stöðunni í heilbrigðiskerfinu á hann og aðra ráðherra ríkisstjórnarinnar. Bjarni bætti því við að þeir sem stóðu að síðustu ríkisstjórn hefðu skilið við heilbrigðiskerfið með þeim hætti að slæmu áhrifanna gæti enn. „Ég bara minni á að þetta er sama fólkið og er að æsa sig hér yfir stöðunni sem skar niður um tæpa þrjátíu milljarða á Landspítalanum og það hefur afleiðingar. Við erum enn að glíma við þær afleiðingar,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra. Bjarni sagði að vissulega væri til skoðunar að auka fjárveitingar til spítalans en benti jafnframt á að aldrei hafi meiri fjármunir verið settir í heilbrigðiskerfið en á þessu ári. „En síðan kemur það í ljós þegar að það líður undir lok þessa árs að Landspítalinn er nokkuð langt frá því að halda sig innan fjárheimilda sem er alvarlegt mál. Vegna þess að hér er fjárveitingarvaldið og því miður er það svo, að því er virðist, að Landspítalinn er ekki að standast áætlanir á grundvelli þeirra fjárheimilda sem hann hefur á þessu ári,“ sagði Bjarni.
Mest lesið Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Erlent Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Erlent Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana Erlent Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Innlent Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Innlent Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu Innlent „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Innlent Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Innlent Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Innlent Fleiri fréttir Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Sjá meira