Innlent

Elliði særir ekkjur með líkingarmáli sínu

Jakob Bjarnar skrifar
Mikið afskaplega finn ég til með þessari ekkju sem Elliði kallar vinkonu sína en er það tæpast lengur, segir Vilborg um pistil sem hún segir alveg einstaklega kauðskan.
Mikið afskaplega finn ég til með þessari ekkju sem Elliði kallar vinkonu sína en er það tæpast lengur, segir Vilborg um pistil sem hún segir alveg einstaklega kauðskan.
Elliði Vignisson bæjarstjóri í Vestmannaeyjum er gegnheill og tilfinningaríkur Sjálfstæðismaður og hann birti nýverið pistil á heimasíðu sinni þar sem hann fjallar um stöðu flokksins. Elliði grípur til þess að líkja Sjálfstæðisflokknum við syrgjandi ekkju. Pistill hans er undir fyrirsögninni „Sjálfstæðisflokkurinn er eins og syrgjandi ekkja“ og þar segir meðal annars:

„Sorgin markaði fyrstu vikurnar. Heimilið var enn notalegt heim að sækja og því vel við haldið en fjörið þar minna. Félagslífið var einnig nánast horfið og framkoma ekkjunnar einkenndist fyrst og fremst af því að henni fannst ekki við hæfi að gleðjast. Hún hafði jú misst og henni fannst hún ef til vill þurfa að sýna að hún væri syrgjandi ekkja,“ skrifar Elliði.

Þetta líkingarmál Elliða hefur lagst afar illa í ekkjur og Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur á vart orð í eigu sinni, og lýsir andúð sinni á stílbrögðum Elliða, á Facebooksíðu sinni: „Ég veit ekki hvar ég á að byrja að lýsa andúð minni á því líkingamáli sem hér er notað. Mikið afskaplega finn ég til með þessari ekkju sem Elliði kallar vinkonu sína en er það tæpast lengur. Og já, ég held ég finni líka dálítið til með Sjálfstæðisflokknum. Svona eins og maður gæti vorkennt þeim sem hefur sk***ð upp á bak án þess að taka eftir því sjálfur.“

Ýmsir eru til að taka undir orð Vilborgar, þeirra á meðal Þórunn Erna Clausen leikkona, henni finnst þetta í hæsta máta ósmekklegt og tekur undir orð Vilborgar. Þá sjást setningar sem mega heita lýsandi um viðhorf margra Elliða, eða öllu heldur þess hversu stílvopnin eru bæjarstjóranum laus í höndum: „[Þ]essi maður hefur greinilega aldrei misst“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×