„Hvernig hafa venjulegir Íslendingar upplifað Hrunið?“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 30. september 2014 14:04 Sara Gangsted vill vita hvernig Íslendingar hafa upplifað Hrunið og brugðist við breyttum aðstæðum í kjölfar þess. Vísir/Stefán/Sara „
Mig langar til að vita hvernig venjulegir Íslendingar hafa upplifað Hrunið og hvernig þeir brugðust við breyttum aðstæðum. Mér finnst það á einhvern undarlegan hátt mjög heillandi hvernig heilt land fór nánast á hliðina og ég velti því mikið fyrir mér hvað fólk gerði í kjölfarið,“ segir Sara Gangsted, danskur nemi í fréttaljósmyndun við Danish School of Media and Journalism. Sara hefur oft komið til Íslands áður en hefur nú verið hér í tæpar tvær vikur. Hún vinnur að stóru skólaverkefni og fjallar hennar verkefni um Íslendinga og efnahagshrunið. „Í fréttaljósmyndun er markmiðið að segja sögu með ljósmynd. Í mínu verkefni vil ég segja sögu nokkurra Íslendinga og hvernig líf þeirra breyttist eftir Hrunið. Ég tek mynd og svo stutt viðtal við viðkomandi til að fá betri innsýn inn í líf hans eða hennar. Ég á nefnilega líka að skrifa grein með myndunum en í náminu lærum við einmitt hvernig þetta tvennt vinnur saman, fréttaljósmyndir og fréttir eða greinar.“ Sara las bók Einars Más Guðmundssonar, Íslenskir kóngar, áður en hún kom til landsins. „Mér fannst bókin mjög fyndin og kaldhæðin, og þó að þetta sé skáldskapur þá virðist mér vera eitthvað sannleikskorn í henni.“ Sara segist gjarnan vilja taka viðtal við Einar Má fyrir verkefnið sitt og vonar að það gangi eftir. „Ég vil taka mynd og viðtal við svona 4-6 einstaklinga en enn sem komið er hef ég bara talað við tvo. Ég ræddi meðal annars við konu sem breytti húsinu sínu í gistiheimili í stað þess að selja það. Þannig gat hún borgað af húsnæðisskuldunum.“ Sara verður á Íslandi til 4. október og segir að fólk megi hafa samband við hana vilji það deila reynslu sinni af Hruninu með henni. Hægt er að finna hana á Facebook eða skrifa henni póst á sgangsted@gmail.com.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Sjá meira