Sveik tæpar 13 milljónir út úr Arion banka með fölsuðum tékka Aðalsteinn Kjartansson skrifar 30. september 2014 17:53 Arion banki situr uppi með tjónið. Nordic Visitor hefur endurgreitt bankanum andvirði ferðarinnar. Vísir / Pjetur
Ferðaþjónustufyrirtækið Nordic Visitor var notað til að svindla 12,8 milljónir króna út úr Arion banka árið 2011. Bankinn greiddi andvirði tékka inn á reikning Nordic Visitor sem átti að vera greiðsla fyrir ferð á vegum fyrirtækisins. Tékkinn hljóðaði upp á talsvert hærri fjárhæð en umrædd ferð átti að kosta og endurgreiddi fyrirtækið því viðskiptavini sínum áðurnefndar 12,8 milljónir króna. Tékkinn reyndist hinsvegar falsaður en þegar það uppgötvaðist voru peningarnir horfnir. Þetta kemur fram í málsgögnum í máli sem Arion banki höfðaði gegn Nordic Visitor en bankinn vildi meina að hið síðarnefnda fyrirtæki ætti að bera ábyrgð á greiðslunni.Greiddi 12,8 milljónum of mikið Málið hófst þegar erlendur aðili að nafni Elijah Okesola pantaði sér ferð á vegum Nordic Visitor að andvirði rúmlega 7.000 evra. Hann samdi um að greiða með tékka sem hann sendi til Arion banka. Þar óskaði hann eftir því að andvirði tékkans yrði greitt inn á reikning fyrirtækisins. 77.548 evra mismunur var hinsvegar á verði ferðarinnar og upphæð tékkans. Eftir að bankinn staðfesti við forsvarsmenn Nordic Visitor að upphæðin yrði ekki bakfærð af reikningi félagsins endurgreiddi það Okesola það sem hann hafi ofgreitt, jafnvirði 12,8 milljóna króna, inn á reikning hans hjá Dubai Islamic Bank, sem er í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.Peningarnir hurfu í Dubai Þegar Arion banki sendi svo tékkann í innheimtu erlendis, þaðan sem hann taldi að tékkinn væri útgefinn, kom hinsvegar í ljós að grunur léki á að hann væri falsaður. Ekki var hægt að endurheimta féð af reikningi Okesola hjá Dubai Islamic Bank þar sem að búið var að tæma reikninginn. Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði því að Nordic Visitor bæri ábyrgð á gjörningnum og sagði að bankinn hafi ekki fylgt réttu vinnulagi við afgreiðslu tékkans; ekki hafi átt að vera búið að greiða út tékkann fyrr en staðfest væri að innistæða væri fyrir honum. Nordic Visitor hefur hinsvegar þegar endurgreitt andvirði ferðarinnar til Arion banka.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Sjá meira