Kemur ekki á óvart að þeir persónugeri umræðuna Jón Júlíus Karlsson skrifar 20. september 2014 14:21 Gylfi Arnbjörnsson segir fjárlagafrumvarpið vera aðför að launafólki. Vísir/Vilhelm
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að nokkrar staðreyndir í málflutningi forystu Alþýðusambandsins um nýtt fjárlagafrumvarp sé ekkert annað en útsnúningur og rangfærslur. Alþýðusambandið hefur slitið samstarfi sínu við ríkisstjórnina og segir forseti sambandsins það ekki koma sér á óvart að forystumenn ríkisstjórnarinnar persónugeri umræðuna í sinn garð. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra skrifaði í gærkvöld stuttan en harðorðan pistill á Facebook og vandar þar forystu Alþýðusambandins ekki kveðjurnar. Bjarni skrifar: „Nokkrar staðreyndir ASÍ eru ekkert annað en útúrsnúningur og rangfærslur. Maður gæti ætlað að það væru kosningar framundan innan ASÍ, svigurmælin stigmagnast dag frá degi.“ Miðstjórn Alþýðusambandsins ályktaði um aðgerðir ríkisstjórnarinnar í gær og kallar ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks, Ríkisstjórn ríka fólksins. Stjórnvöld hafi lagt kapp á að auka ráðstöfurnartekjur best stæðu heimilia landsins langt umfram þau tekjulægri. Um þessa gagnrýni skrifar Bjarni: „Er það svo að þegar Samfylkingunni dettur „sniðugur“ frasi í hug þá er hann sjálkrafa pikkaður upp af formanni ASÍ, sem fyrrum hugði á framboð undir þeirra merkjum.“ Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir ummæli fjármálaráðherra ekki koma sér á óvart. Það sé þekkt aðferð að persónugera umræðuna. „Ég ítreka það að það kemur ekki alveg á óvart, miðað við það sem við höfum séð á undanförnum mánuðum og síðan þessi ríkisstjórn tók við, og það verður þá að vera svo.“ Gylfi segir flokkana auðvitað velja hvernig þeir vilja fara í þessa umræðu. „En ég ítreka að þetta fjárlagafrumvarp er aðför að launafólki og það er auðvitað miður.“ Gylfi segir Alþýðusambandið vera búið að reyna í heilt ár að eiga samræður við ríkisstjórnina og reyna að sameinast um einhvern málefnagrunn sem gæti lagt grunn að einhverju samstarfi. „Það hefur ekki verið vilji ríkisstjórnarinnar að fara eftir því og þess vegna hefur þessu verið slitið. Okkur er boðið til samstarfs að framfylgja stefnu ríkisstjórnarinnar. Það er ekki áhugi á því í Alþýðusambandinu að framfylgja stefnu þessarar ríkisstjórnarinnar.“
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira