„Þetta er ekkert minna en stórkostlegt“ Stefán Ó. Jónsson skrifar 21. september 2014 17:39 Vinningshafarnir Gunnar Helgason og Guðni Kolbeinsson. Mynd/Aðsend
Bókaverðlaun barnanna voru afhent við hátíðlega athöfn í Borgarbókasafni við Tryggvagötu í dag, sunnudaginn 21. september. Bókin Ragnstæður í Reykjavík eftir Gunnar Helgason hlaut flest atkvæði í flokki íslenskra barnabóka og Amma glæpon eftir David Walliams, í þýðingu Guðna Kolbeinssonar, í flokki þýddra barnabóka. Tæplega fjögur þúsund börn af öllu landinu tóku þátt í valinu, sem fór fram á heimasíðu Borgarbókasafns og í grunnskólum og bókasöfnum um allt land. Gunnar Helgason segir það mikinn heiður að hljóta verðlaunin. „Þetta er ekkert minna en stórkostlegt. Að fá svona verðlaun frá lesendunum sjálfum því maður er að skrifa þetta með þá von í brjósti að börnin tengi við þetta. Þetta er þá staðfesting að það hafi tekist, alla vega að einhverju leyti. Ég er í skýjunum“ Gunnar vinnur nú að síðustu bókinni í fótboltaröðinni svokölluðu en áður hefur hann skrifað þrjár barnabækur um ævintýri fótboltakappa. Sú fjórða mun bera heitið Gula spjaldið í Gautaborg og er stefnt að því að hún komi út í kringum 18. október. Sex börn fengu viðurkenningu fyrir þátttökuna í valinu, þær Bryndís Perla Garðarsdóttir, Elsa Björg Sturlaugsdóttir, Íris Thelma Viðarsdóttir, Aþena Helgadóttir og Anna Rakel Guðjónsdóttir. Tilviljun réði því að eingöngu stúlkur voru dregnar út í þetta skiptið. Þær fengu að launum leikhúsmiða og máltíðir á Hamborgarabúllunni, og Anna Rakel fær að aukum Gunnar Helgason í heimsókn í bekkinn sinn. Handhafar bókaverðlaunanna sjálfra fengu bók Ragnars Axelssonar, Fjallaland, að gjöf frá safninu.Bryndís Perla Garðarsdóttir, Elsa Björg Sturlaugsdóttir, Íris Thelma Viðarsdóttir, Aþena Helgadóttir og Anna Rakel GuðjónsdóttirMYND/AÐSEND
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira