Óprúttnir aðilar biðja um notendanafn og aðgangsorð Samúel Karl Ólason skrifar 12. september 2014 12:54 Vísir/Getty
Borið hefur á því að viðskiptavinir banka hafi fengið tölvupósta í vikunni. Þar eru þeir beðnir um að smella á tengil inni í póstinum og gefa upp notendanafn og aðgangsorð að netbönkum. Þetta kemur fram í sameiginlegri fréttatilkynningu frá netöryggissveit Póst- og fjarskiptastofnunar, Ríkislögreglustjóra, Arion banka, Íslandsbanka, Landsbankanum og MP banka. Almenningur er hvattur til að vera á varðbergi gagnvart slíkum tölvupósti og alls ekki smella ekki á slíka tengla. „Bankar og fjármálafyrirtæki biðja viðskiptavini sína aldrei um notendaupplýsingar í gegnum tölvupóst, né hvetja þá með þeim hætti til að skrá sig inn í heimabanka. Gott er að senda grunsamlega tölvupósta áfram til viðkomandi banka til upplýsingar fyrir starfsfólk hans og eyða síðan viðkomandi skeyti tafarlaust.“ Þá segir í tilkynningunni að fólk sé hvatt til að fara ekki í netbanka nema í gegnum vefsíður viðkomandi banka eða fjármálafyrirtækis. Hafi einhverji smellt á hlekk úr tölvupósti eins og þeim sem er lýst hér að ofan, eru þeir hvattir til að skipta um lykilorð í netbankanum. Að lokum er bent á þrjú atriði sem gott sé að hafa í huga fyrir þá sem notist við netbanka. • Notendur eiga aldrei að smella á grunsamlega tengla í tölvupósti. Gott er að hafa það fyrir reglu að tengjast netbanka eingöngu í gegnum heimasíðu viðkomandi banka. Þetta skal einnig hafa í huga þegar um viðkvæmar upplýsingar eða viðskipti af öðru tagi er að ræða. • Bankar senda aldrei viðskiptavinum sínum tölvupóst þar sem notendur eru beðnir um að uppfæra upplýsingar um sig með því að smella á hlekk í skeytinu eða senda upplýsingar með því að svara póstinum. Þetta á t.d. við um notendanafn, lykilorð eða greiðslukortaupplýsingar. • Þegar farið er inn í netbanka ber að gæta þess að slóðin í vafra sé á öruggu vefsvæði, það sést með því að ganga úr skugga um að https:// sé fremst í vefslóð.
Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Fleiri fréttir Láti eins og þjóðin geti ekki skilið um hvað málið snúist Illa lagður pallbíll upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Bein útsending: Kristrún með ávarp vegna atkvæðagreiðslunnar Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Sjá meira