BSRB mótmælir hækkun virðisaukaskattþreps Samúel Karl Ólason skrifar 12. september 2014 13:53 Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB. Vísir/Stefán
Stjórn BSRG mótmælir fyrirætlunum stjórnvalda að hækka skatta á nauðsynjavörur, draga úr áunnum rétti atvinnulausra og aukningu á greiðsluþátttöku almennings fyrir almannaþjónustu. Segja þeir að hvað sem „reiknikúnstum fjármálaráðherra“ líði, sé staðreyndin að hækkun neðra þreps virðisaukaskattsins muni hækka verð nauðsynja umtalsvert. Eins og matvæla og heits vatns og muni það bitna harðast á þeim sem minnst hafa á milli handanna. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar BSRB. „Stjórn BSRB hafnar því að hækkun barnabóta vegi upp skattahækkanir helstu nauðþurfta og komi þannig til móts við aukin útgjöld þeirra tekjulægstu. Stór hluti þeirra efnaminnstu hafa ekki börn á framfæri og njóta því engra mótvægisaðgerða vegna skattahækkananna. Auknar byrðar eru því lagðar á þennan stóra hóp til að létta megi byrðar hinna efnameiri.“ Þá hafnar stjórnin því að hækkun barnabóta vegi upp skattahækkanir helstu nauðþurfta. „Stór hluti þeirra efnaminnstu hafa ekki börn á framfæri og njóta því engra mótvægisaðgerða vegna skattahækkananna. Auknar byrðar eru því lagðar á þennan stóra hóp til að létta megi byrðar hinna efnameiri.“ Þar að auki segir að afstaða stjórnvalda í garð atvinnulausra og þá sérstaklega þeirra sem hafa verið án atvinnu lengi, birtist með skýrum hætti í nýju fjárlagafrumvarpi. „Skerða á áunnin rétt launafólks til atvinnuleysisbóta um sex mánuði á sama tíma og ríkið mun ekki greiða sitt framlag til VIRK starfsendurhæfingarsjóðs og jafnframt skerða fjárframlög til Vinnumálastofnunar. Að óbreyttu mun geta VIRK og Vinnumálastofnunar til að sinna hlutverki sínu – sem er m.a. að aðstoða atvinnulausa að snúa aftur á vinnumarkaðinn – skerðast til muna.“ Stjórn BSRB krefst þess að ríkisstjórnin standi sannarlega vörð um grunngildi samfélagsins. Jöfnuðinn, réttlætið og jafnrétti allra. „Almannaþjónustuna verður að reka á samfélagslegum grunni og stjórnvöld verða að standa vörð um velferðarkerfið og starfsfólkið sem innan þess starfar. Ef öllum er ekki tryggður jafn aðgangur að almannaþjónustunni óháð efnahag er aldrei hægt að tala um Ísland sem samfélag jafnaðar.“
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira