Taka á móti sex manna fjölskyldu frá Afganistan Stefán Árni Pálsson skrifar 12. september 2014 21:59 Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri, og Eygló Harðardóttir.
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra og Haraldur Líndal Haraldsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, undirrituðu í dag samning um móttöku, aðstoð og stuðning við sex manna fjölskyldu frá Afganistan sem hingað er komin á grundvelli ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um móttöku flóttafólks. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar miðaðist við að tekið skyldi á móti konum í hættu frá Afganistan. Flóttamannanefnd í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna gerði tillögu um einstaklinga sem tekið skyldi á móti og var sú tillaga samþykkt í ríkisstjórn. Flóttamannanefnd var falið að undirbúa móttöku fólksins og var leitað til Hafnarfjarðar um möguleika og vilja bæjarfélagsins til þess að taka að sér verkefni sem þetta. Samningurinn sem undirritaður var í dag fjallar um helstu verkefni sem móttaka flóttafólks felur í sér og bæjarfélagið mun sjá til að fólkið fái notið. Þessi verkefni varða einkum ýmsa félagslega þjónustu, stuðning og aðstoð en lúta einnig að heilbrigðisþjónustu, grunnskólamenntun og annarri þjónustu sem íbúar sveitarfélaga njóta almennt. Rauði krossinn á Íslandi gegnir einnig hlutverki í móttöku og aðlögun flóttafólks samkvæmt viðmiðunarreglum flóttamannanefndar og verður samningur um aðkomu hans að stuðningi við fjölskylduna í Hafnarfirði undirritaður innan skamms. „Við höfum átt góða samvinnu við alla sem hafa komið að þessu máli og við munum leggja okkur fram við að fjölskyldunni líði sem allra best í Hafnarfirði. Fyrir hönd bæjarins býð ég þau hjartanlega velkomin, “ segir Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, segist afar þakklát Hafnfirðingum fyrir að hafa brugðist vel við ósk um móttöku afgönsku fjölskyldunnar: „Ástandið í Afganistan er skelfilegt og neyð flóttafólksins eftir því. Það er mikilvægt fyrir Íslendinga sem þjóð að leggja sitt af mörkum til hjálpar og móttaka flóttafólks er liður í því.“
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Fleiri fréttir Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Sjá meira