Stórlega dregið úr HIV meðal sprautufíkla Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 13. september 2014 13:17 vísir/getty
Stórlega hefur dregið úr HIV smitum meðal sprautufíkla hér á landi, en af þeim ellefu sem greindust með HIV á síðasta ári smituðust tveir þeirra eftir notkun notaðra sprautunála. Sprenging varð í HIV smitum síðustu árin 2011-2012, þegar tæplega fimmtíu greindust með veiruna. Meirihluti þeirra smitaðist í gegnum sprautur. Framkvæmdastjóri HIV-Ísland segir þessa fækkun aukinni fræðslu og skaðaminnkandi hugmyndafræði frú Ragnheiðar að þakka. „Frú Ragnheiður er gamall sjúkrabíll á vegum Rauða krossins sem ekur um göturnar og getur fólk í neyslu farið og fengið þar hreinar sprautur. Þetta kallast skaðaminnkandi hugmyndafræði og hefur nú stórlega dregið úr HIV meðal sprautufíkla,“ segir Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri HIV-Ísland. Frú Ragnheiður er verkefni á vegum Rauða Krossins sem byggir á skaðaminnkun og hefur þann tilgang að ná til jaðarhópa samfélagsins, til dæmis útigangsfólks, heimilislausra og fíkla og bjóða þeim skaðaminnkandi þjónustu og almenna heilsuvernd, án fordóma eða kvaða, í þeirra nærumhverfi. Markmið verkefnisins er að draga úr skaðsemi lifnaðarhátta jaðarhópa með því að auðvelda þeim aðgengi að sárameðferð, hreinum nálum, sprautum og almennri fræðslu um skaðaminnkun.Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri HIV-Ísland.„Smitsjúkdómadeild Landspítalans býður einnig upp á svokallaða skammtameðferð. Þá geta þeir sem eru í mikilli neyslu, sem oft gleyma að taka lyfin sín eða taka ekki rétta skammta, farið á spítalann og sótt sinn skammt og á sama tíma verið í reglulegum samskiptum við hjúkrunarfræðinga eða lækna.“ Reglulega halda samtökin HIV-Ísland fyrirlestra í skólum og fyrirtækjum ásamt því að bjóða upp á fræðslustarf í fangelsum og meðferðardeildum. Einar segir umræðuna hægt og rólega vera að breytast en óskar þó eftir meiri og opnari umræðu. Ekki sé þörf á ótta. „Hingað til hefur það verið flokkað í ákveðna hópa hverjir það eru sem smitast með HIV. Samkynhneigðir, sprautufíklar og svo framvegis. Hlutirnir eru bara breyttir í dag og það viðheldur fordómum að flokka. Það sem skiptir máli er að fræða fólk og að fólk þekki smitleiðir. Það er annars vegar óvarið kynlíf og hins vegar að deila með sér notuðum sprautum,“ segir Einar. „Oft kemur það aftan að fólki þegar það smitast og fólk hefur oft ekki hugmynd um að það sé smitað fyrr en einhverjum árum eftir að það smitast. Við hvetjum alla til þess að hringja á smitsjúkdómadeild Landspítalans og láta athuga þetta. Það tekur enga stund og niðurstöðurnar fást um það bil degi síðar,“ segir Einar.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira