Segir að borgaryfirvöld neiti að funda með íbúum við Borgartún Stefán Árni Pálsson skrifar 14. september 2014 17:46 visir/daníel
Á síðasta fundi borgarráðs var felld tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að deiliskipulagi Borgartúns 28 og 28A verði frestað þar til fundað hefði verið með íbúum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Júlíusi Vífli Ingvarssyni, borgarfulltrúa Sjálfstæðiflokksins í Reykjavík. „Það er eiginlega óskiljanlegt að fulltrúar meirihlutaflokkanna í borgarstjórn skuli hafna því að eiga samtal við það fólk sem hefur mótmælt skipulagsbreytingum í Borgartúni,“ segir Júlíus. Ennfremur segir hann að það sé engu líkara að þeir óttist að tala við borgarbúa. „Athugasemdir íbúanna eru skýrar og vel rökstuddar en samt er ekkert tillit tekið til þeirra. Fyrir fjórum vikum lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fram tillögu um að haldinn yrði samráðsfundur með íbúum og síðan hefur afgreiðsla skipulagsins verið í frestun. Af hverju var þá tíminn ekki notaður til að hlusta á íbúa og leitað sátta við þá? Það getur aldrei verið til annars en góðs að kynna sér öll sjónarmið og eiga samráð. Ég mun taka málið og þessi vinnubrögð upp í borgarstjórn á þriðjudaginn“. Við afgreiðslu málsins í borgarráði 11. september bókuðu borgaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eftirfarandi:Fyrir þremur vikum lögðu borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fram tillögu í borgarráði um að haldinn yrði opinn upplýsinga- og samráðsfundur með íbúum og öðrum hagsmunaaðilum vegna auglýstra breytinga á deiliskipulagi á lóð nr. 28 og 28a við Borgartún. Lagt var til að deiliskipulagið yrði ekki afgreitt fyrr en að loknum þeim fundi. Sambærileg tillaga var lögð fram í Umhverfis og skipulagsráði 13. ágúst sl. Frá því tillagan var fyrst lögð fram eru því liðnar um fjórar vikur. Allan þann tíma hefur málið verið í frestun. Furðu sætir að í stað þess að nýta tímann til að tala við borgarbúa er þagað þunnu hljóði og haldið áfram með umdeilt mál sem mótmælt hefur verið kröftuglega. Einföld tillaga um að borgaryfirvöld hafi samráð við borgarbúa er felld með öllum atkvæðum borgarráðsfulltrúa meirihlutans. Allt tal sömu fulltrúa um að taka upp meira samráð við borgarbúa er ekki trúverðugt.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira