Salmann kallaði Valdimar bölvaðan gyðing Jakob Bjarnar skrifar 15. september 2014 16:00 Frá mótmælunum fyrir framan Laugardalsvöll um helgina. Engir kærleikar eru millum Valdimars og Salmanns.
Valdimar H. Jóhannesson blaðamaður birti í gær dramatíska frásögn undir fyrirsögninni „Bullur og rasistar“ þar sem hann lýsir því þegar sló í brýnu milli vina Ísrael og félagsins Ísland-Palestína á landsleik í kvennaknattspyrnu um helgina. Svo virðist sem kappið hafi ekki verið minna utan vallar en innan. Ísland-Palestína hafði boðað til mótmæla vegna leiksins, en í tilkynningu sem félagið sendi frá sér kom meðal annars fram að landsliðið sé fulltrúi Ísraelríkis, sem stundi grimmilegar árásir á óbreytta borgara í Palestínu, hernám og landrán á palestínsku landi. „Herskylda í Ísrael er þrjú ár fyrir karlmenn og tvö ár fyrir konur – og því er verið að bjóða hér velkomna tilvonandi og fyrrverandi hermenn í her sem stundar mannréttindabrot og hefur að mati mannréttindasamtaka stundað stríðsglæpi í nýafstaðinni innrás sinni á Gaza.“ Valdimar var hins vegar ekki mættur á leikinn til að mótmæla heldur í félagskap vina Ísrael. Hann lýsir því að slegið hafi í brýnu milli þessa tveggja hópa, en mótmælendur hrópuðu ókvæðisorðum til vina Ísrael: „Lægst lagðist ímaminn [Salmann Tamimi] þegar hann gerði hróp að mér og kallaði mig helvítis gyðing. Ekki svo að skilja að ég væri nokkuð nema stoltur af því að vera gyðingur ef það hefði orðið mitt hlutskipti. En getur rasisminn almennt orðið rosalegri en þegar nafn kynþáttar eða trúarhóps er notað sem skammaryrði?“ spyr Valdimar á bloggi sínu. Hann vonar að samherjar Salmanns séu ekki svo illa á sig komnir að hróp hans hefðu fyllt þá stolti. „Eða eru þeir kannski bara ósköp venjulegir og lágkúrulegir gyðingahatarar?“ Þá greinir Valdimar frá því að fyrrverandi borgarfulltrúinn Þorleifur Gunnlaugsson hafi sýnt mikið offors í að reka sig í burtu af svæði sem mótmælendur höfðu lagt undir sig, en þangað taldi Valdimar sig eiga erindi við lögregluþjóna sem þar voru staddir. „Við vinir Ísrael höfðu ákveðið að munnhöggvast alls ekki við hatursliðið. Ég vék því þegar af vettvangi og svaraði ekki persónulegum svívirðingum sem ímaminn jós yfir mig. Er virkilega svo komið að menn af tagi Þorleifs skuli telja einhver svæði „no go" svæði eins og múslímar eru búnir að koma sér upp um alla Evrópu. Er „fjölmenningin" hérna virkilega að komast á það stig. Það fer um mig hrollur að svona skuli vera komið fyrir íslensku samfélagi,“ skrifar Valdimar.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Sjá meira