Erfiður og sérstakur tími fyrir Háskóla Íslands Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 16. september 2014 17:14 Kristín Ingólfsdóttir segist ekki ætla í forsetaframboð. Vísir/Stefán
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, tilkynnti á opnum fundi með starfsfólki skólans í dag að hún hyggist ekki sækjast eftir endurkjöri á næsta ári. Hún hefur verið rektor frá árinu 2005. Í samtali við Vísi segir hún tíma sinn sem rektor hafa verið bæði sérstakan og erfiðan vegna efnahagshrunsins. „Þrátt fyrir miklar skerðingar á fjárframlögum til skólans þá hafa síðustu ár engu að síður verið mikill sóknartími. Það hefur náðst ótrúlegur árangur bæði hjá starfsfólki og stúdentum sem hafa fylkt sér um stefnu skólans og þjónað honum eins og best verður á kosið,“ segir Kristín. Hún segir að starfsfólki hafi tekist að halda rannsóknum áfram með því sækja í erlenda rannsóknarsjóði þar sem samkeppnin um styrki er gríðarlega hörð. Vísindamenn skólans hafi fengið styrki úr umræddum sjóðum og hafi það gefið svigrúm til að halda rannsóknum við Háskólann gangandi. „Ég vil svo sérstaklega taka það fram hvað stúdentar hafa staðið þétt við bakið á skólanum á þessum tíma og verið ötulir í baráttunni,“ segir Kristín. Aðspurð um það markmið sem Háskólinn setti sér árið 2006 um að komast í hóp 100 bestu háskóla í heimi segir hún það hafa verið langtímamarkmið sem sett hafi verið fram ásamt skýrri stefnu um hvernig komast mætti í hóp þeirra bestu. Stefnan og markmiðið hafi verið sett fram með stuðningi stjórnvalda sem gerðu samning við Háskólann. „Svo kom efnahagshrunið og samningurinn við stjórnvöld var blásinn af. Við héldum hins vegar okkar striki og héldum okkur við stefnuna sem sett hafði verið. Við komumst síðan á lista Times Higher Education yfir 400 bestu háskóla í heimi árið 2011 sem ég tel að hafi verið algjört kraftaverk eftir jafnerfiða tíma og fylgdu efnahagshruninu. Háskólinn var í sæti númer 269 á þessum lista í fyrra og hafði þá farið upp um 8 sæti milli ára.“Kristín segir það kraftaverk að skólinn hafi komist á lista yfir 400 bestu háskóla í heimi í ljósi efnahagshrunsins.Vísir/GVAÆtlar ekki í forsetaframboð„Maður heyrir ýmislegt á göngunum,“ svarar Kristín hlæjandi aðspurð að því hvort hún hafi heyrt af mögulegum eftirmanni sínum í starfi. Hún segir þó að enginn hafi stigið fram en enginn skortur sé á hæfileikaríku fólki sem geti tekið við rektorsstöðunni. Nafn Kristínar hefur oft komið upp í umræðunni um hver taki við sem forseti þegar Ólafur Ragnar Grímsson hættir, en hún staðfestir að hún ætli ekki í framboð. „Nei, hugur minn liggur annað. Ég er auðvitað með hugann við komandi vetur hér í Háskólanum og efst á baugi eru fjármál skólans. Ég vil gjarnan koma hlutunum þannig fyrir að þegar ég láti af störfum geti nýr rektor og háskólasamfélagið allt litið björtum augum til framtíðar.“ Varðandi hvað taki við hjá henni þegar hún hættir segir Kristín: „Það eru ýmis verkefni í lyfjafræðinni sem ég hef hug á að sinna og svo hef ég mikinn áhuga á háskólamálum. Ég hef þegar tekið að mér verkefni fyrir evrópska háskóla sem ég mun þá geta sinnt betur þegar ég læt af störfum sem rektor.“
Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira