Ánægja með hækkun ellilífeyrisaldursins Hjörtur Hjartarson skrifar 16. september 2014 18:42
Formaður félags eldri borgara er ánægður með þær tillögur lífeyrisnefndar um að hækka ellilífeyrisaldurinn um þrjú ár. Að sama skapi segir formaðurinn áfram mikilvægt að tryggja ávöxtunarkröfu hjá lífeyrissjóðunum. Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður lífeyrisnefndar sagði í fréttum okkar í gær að fyrir lægi að tillögur um róttækar breytingar á lífeyriskerfinu yrðu lagðar fram innan nokkurra vikna. Meðal þess sem kom fram var að ellilífeyrisaldurinn yrði hækkaður um þrjú ár. „Nefndin mun skoða það mjög vandlega og leggja til hugsanlega einhverjar breytingar sem felast á hækkun á ellilífeyrisaldri úr 67 árum í 70 á nokkuð löngu tímabili, þrjátíu árum, eitthvað svoleiðis,“ sagði Pétur. Þá mun nefndin einnig leggja til ellilífeyrisþegar og öryrkjar verði gert kleift halda út á vinnumarkaðinn í auknu mæli án þess að til skerðingar á lífeyri komi. Formanni félags eldri borgara líst vel á þessar tillögur. „Jú, vissulega og sérstakleg að fá sveigjanlegan starfslok. Við höfum oft heyrt um það að hluti opinbera starfsmanna myndi gjarnan vilja kannski vinna hálfu ári lengur eða tveimur árum lengur en sjötíu ára markið er bara mjög ákveðið og þá verður fólk að hætta. En á almenna vinnumarkaðinum er þetta ekki alveg eins stíft en samt á sumum stöðum eins og til dæmis í bankakerfinu,“ segir Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík. Þórunn segir það í takt við æ lengri lífaldur Íslendinga að hækka ellilífeyrisaldurinn. „Við erum náttúrulega hraustari lengur, getum unnið lengur og ég held að hlutavinna á þessum efri árum geti verið mjög áhugaverð. Við heyrum í fólki sem saknar þess virkilega að hafa ekki vinnufélagana,“ segir Þórunn.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira