Sendiherra Kína á Íslandi handtekinn vegna gruns um njósnir Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 17. september 2014 08:52 Sendiherra Kína á Íslandi, Ma Jisheng.
Sendiherra Kína á Íslandi, Ma Jisheng, og eiginkona hans, Zhong Yue, hafa verið handtekin af kínverskum yfirvöldum vegna gruns um njósnir í Japan, samkvæmt kínverskum fjölmiðlum. Fullyrt er að þau hafi verið handtekin í byrjun árs 2014. Jafnframt kemur fram að grunur leiki á að Jisheng hafi lekið upplýsingum til japanskra stjórnvalda þegar hann var hluti af diplómatateymi Kínverja í Japan. Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, segir í samtali við Vísi að tilkynning hafi borist frá kínverska sendiráðinu í maí síðastliðnum um að sendiherrann myndi ekki snúa aftur til starfa vegna persónulegra ástæðna. Hans varamaður hefur því gengt starfi sendiherra síðan þá. Hún segir jafnframt að sendiherrann hafi haldið af landi brott í janúar síðastliðnum og hugðist snúa aftur í mars. Ekkert varð þó af þeirri heimkomu, og eins og fyrr segir, barst tilkynning í maí um að hann myndi ekki snúa aftur til starfa. Stefán Skjaldarson, sendiherra Íslands í Kína, sagði í samtali við DV að fjarvera hans stafi af fjölskylduástæðum eingöngu, erfiðs heilsufars aldraðra foreldra sendiherrans og að hann hafi óskað eftir leyfi frá störfum til að sinna þeim.
Mest lesið „Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Innlent Brynjar ráðinn korter í kosningar Innlent Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Erlent Hraðlyginn leiðsögumaður úr landi Innlent Eitt helsta kennileiti bæjarins rifið: „Þetta er annað heimilið mitt“ Innlent Segir ummæli séra Jakobs kalla á rannsókn lögreglu Innlent Flóttinn frá Dúbaí gengur vel Innlent Sýknudómur Brims í máli sjómannsins ómerktur Innlent Komust af sjálfsdáðum út úr brennandi íbúð í nótt Innlent Dæmdir fyrir að stela dósum af ÍBV Innlent Fleiri fréttir Sagði frá ofbeldinu í fyrsta skipti Rannsaka frelsissviptingu og fíkniefnavörslu „Við ætlum ekki að líða þetta“ Baðst afsökunar í þinginu: „Þeir eru að verja ríka fólkið, kvótakóngana, sægreifana“ Lögregla bankar upp á vegna hótana í garð ráðamanna Bein útsending: Ræða upplýsingaóreiðu og netógnir í aðdraganda kosninga Sýknudómur Brims í máli sjómannsins ómerktur Ráðherra friðlýsti Grafarvoginn Brynjar ráðinn korter í kosningar Eitt helsta kennileiti bæjarins rifið: „Þetta er annað heimilið mitt“ Þau skipa D-listann í Hveragerði Rósa í heiðurssæti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði Flóttinn frá Dúbaí gengur vel Segir ummæli séra Jakobs kalla á rannsókn lögreglu Átján Íslendingar óskað eftir sæti í björgunarferðum Niðurstöður samræmdu prófanna birtar eftir skólum Ummæli kanslara kaþólikka gagnrýnd og átján Íslendingar vilja far með björgunarvélum Hraðlyginn leiðsögumaður úr landi Eigendur Ítalíu í þriggja ára atvinnurekstrarbann Með skerta athygli af óþekktum ástæðum þegar slysið varð Dæmdir fyrir að stela dósum af ÍBV Leituðu skjóls í Hreysinu Bein útsending: Landssamráðsfundur gegn ofbeldi „Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Hrunvarnir við Holtsnúp verði tilbúnar í ágúst Búið að opna veginn um Raknadalshlíð eftir flóðið Skiptast á að gæta barnanna á meðan þau bíða eftir plássi Komust af sjálfsdáðum út úr brennandi íbúð í nótt Grunaður um að kýla konu og sparka svo í hana þegar hún lá eftir Karólína Helga leiðir Viðreisn í Hafnarfirði Sjá meira