Nýtt leirgos á Reykjanesi: „Mér brá virkilega“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. september 2014 09:36 „
Ég hef farið þangað í mörg ár og það hefur verið hver þarna lengi. En það hefur bara rétt gutlað upp úr honum,“ segir Olgeir Andrésson ljósmyndari. Olgeir var einn þeirra fyrstu sem varð var við leirhver sem tók heldur betur við sér í gær.Hverinn má sjá í myndbandi neðst í fréttinni. Líkt og fjallað hefur verið um í vikunni hefur orðið vart við aukna virkni við Gunnuhver á Reykjanesi. Hverinn ku vera virkasti leirhver landsins en í kvöldfréttum Stöðvar 2 sást meðal annars hvernig útsýnispallur varð hinni auknu virkni að bráð. Olgeir mætti á svæðið í gær og myndaði Gunnuhver í bak og fyrir. Í kjölfarið hafi hann gengið um svæðið eins og hann sé vanur að gera. „Allt í einu heyri ég þessi svakalegu læti fyrir aftan mig. Þá var gos hafið í hvernum fyrir aftan mig,“ segir Olgeir. Hann telur að gusurnar hafi náð sjö til tíu metra hæð. Gosið hafi á um tíu mínútna fresti. „Mér brá virkilega,“ segir Olgeir. Í myndbandinu að ofan má sjá umfjöllun úr kvöldfréttum Stöðvar 2 frá því í gærkvöldi en að neðan myndband af nýja hvernum sem Olgeir myndaði um miðjan dag í gær. Myndbandið má sjá í betri upplausn hér. Hann segir ekki gott fyrir hinn almenna borgara að finna nýjan hverin sem þó er á Gunnuhverssvæðinu. Nýi hverin gæti því verið vel geymt leyndarmál í bili að minnsta kosti. „Þú sérð þetta ekki úr fjarlægð nema þú vitir af þessu,“ segir Olgeir.Gesti við Gunnuhver í gær fannst lyktin ekkert sérstaklega góð.Vísir/GVA Post by Olgeir Andresson.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira