BL biður Memfismafíuna afsökunar Jakob Bjarnar skrifar 18. september 2014 12:26 Kiddi í Memfismafíunni leitar réttar sín vegna auglýsingar BL.
Í Fréttablaðinu í dag birtist Land Rover-auglýsing frá BL, þar sem tvær línur úr laginu „Það geta ekki verið gordjöss“, sem Memfismafían og Páll Óskar fluttu í söngleiknum Diskóeyjan, er notuð sem uppistaða. Lagið náði miklum vinsældum fyrir fáeinum árum. Vefmiðillinn Nútíminn, greinir frá því að verulegrar óánægju gæti í herbúðum Memfismafíunnar, en ekki var haft fyrir því að fá leyfi fyrir notkun hendinganna, hvað þá meira. „„Ég reikna bara með því að BL sendi mér bíl — ég vil fá bíl í fyrramálið,“ hefur Nútíminn eftir Guðmundi Kristni Jónssyni, eða Kidda, einum meðlima Memfismafíunnar. Hann segir þá félaga þegar byrjaðir að leita réttar síns í málinu en þetta sé fráleitt í fyrsta skipti sem textabrot frá þeim séu notuð án leyfis í auglýsingum; mikið af „kósíkvöldum“ og „mamma þarf að djamma“. Markaðsstjóri BL er Loftur Ágústsson, hann hefur yfirumsjá með auglýsingum fyrirtækisins og honum var brugðið þegar Vísir leitaði viðbragða, en það er auglýsingastofan ENNEMM sem hannar auglýsingar BL. „Okkar fyrstu viðbrögð voru að stoppa frekari birtingar á auglýsingunni og þar sem við höfum ekki fengið tækifæri til að biðja hlut að eigandi formlega velvirðingar á að hafa notað þessar hendingar í auglýsinguna langar okkur að gera það hér með. Okkur einfaldlega datt ekki í hug að við værum að gera eitthvað sem við mættum ekki því fór sem fór,“ segir Loftur. Hann segist auk þess bera fulla virðingu fyrir höfundarétti og áréttar að um klaufaleg mistök séu að ræða. Málið er nú til athugunnar en höfundarréttarmál hafa hingað til verið að velkjast á gráu svæði, og óljóst hvar línur liggja. Þannig bendir Helgi Seljan sjónvarpsmaður, og ákafur aðdáandi Bubba Morthens, á það á sinni Facebooksíðu að fyrirsögn mbl.is, „Með skaddað stýri og laskaða vél“, sé beint upp úr textabók Bubba: „Menn vitna ekki nógu oft í Bubba í fyrirsögnum. Hér er það líka ídealt, þó tilvísun í textabrotið fjalli auðvitað um hræðilegan harmleik sem ólíkt þessum - sem betur fer - kostaði mörg mannslíf.“
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira