Flugdólgurinn íslenskur Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 19. september 2014 14:57 vísir/gva
Maðurinn sem handtekinn var í fyrradag fyrir að sýna ógnandi tilburði í flugi Icelandair frá Halifax til Keflavíkur er Íslendingur á fimmtugsaldri. Að sögn lögreglu var hann afar ölvaður. Maðurinn var handtekinn við lendingu, snemma morguns, og var honum sleppt úr haldi um það bil sjö klukkustundum síðar, eða rétt eftir hádegi. Hann verður í kjölfarið kærður, væntanlega fyrir brot á lögum um loftferðir. Strax í upphafi ferðar hóf hann að sýna bæði áhöfn og farþegum ógnandi tilburði, var með mikil ólæti og átti áhöfnin í fullu fangi með að róa manninn niður, en ferðin tekur tæpar fimm klukkustundir. Líkt og frægt er þurfti að binda niður farþega Icelandair á síðasta ári, sem jafnframt sýndi afar ógnandi tilburði í flugi flugfélagsins til New York. Málið vakti heimsathygli og hefur hann síðan þá verið kallaður „íslenski flugdólgurinn“ víðs vegar um heiminn. Var hann kærður og meinað að fljúga með flugfélaginu í kjölfarið. Orðatiltækið allt er gott sem endar vel á þó vel við í þessu tilfelli því sættir náðust á milli mannsins og Icelandair og fær hann nú að fljúga með félaginu aftur, með þeim skilyrðum að hann sé í fylgd ábyrgðarmanns. Talsmenn Icelandair vildu ekki tjá sig um málið þegar eftir því var óskað og liggur því ekki fyrir hvort flugfélagið muni kæra manninn.
Tengdar fréttir Flugdólgur handtekinn á Keflavíkurvelli Óskað var aðstoðar lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni við að fjarlægja drukkinn og ógnandi farþega sem var að koma með flugi frá Halifax. 19. september 2014 13:17 Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Fleiri fréttir „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjá meira
Flugdólgur handtekinn á Keflavíkurvelli Óskað var aðstoðar lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni við að fjarlægja drukkinn og ógnandi farþega sem var að koma með flugi frá Halifax. 19. september 2014 13:17