Krefjast þess að ljósleiðari verði hringtengdur Stefán Árni Pálsson skrifar 26. ágúst 2014 21:05 visir/egill
Bæjarráð Bolungarvíkur fundaði í kvöld vegna þeirra stöðu sem kom upp í dag á Vestfjörðum en fjarskiptaþjónustan á svæðinu var að hluta úti eftir að bilun varð í stofnkerfi Mílu. Ráðið hefur nú sent frá sér eftirfarandi ályktun:Í ljósi þess að í dag lá fjarskiptaþjónusta Símans, þar með talið sími, nettengingar og farsímar, á Vestfjörðum niðri meira og minna í 5 klukkustundir þá vill bæjarráð Bolungarvíkur ítreka þá sjálfsögðu kröfu Vestfirðinga að ljósleiðari verði hringtengdur á Vestfjörðum. Enginn mannlegur máttur getur komið í veg fyrir að ljósleiðarasamband rofni vegna mannlegra mistaka eða vegna ófyrirsjáanlegra atburða í náttúrunni. Hringtenging er eina leiðin til að koma í veg fyrir að slíkir atburðir hafi veruleg áhrif á atvinnulíf og daglegt líf Vestfirðinga svo ekki sé minnst á hversu alvarlegt það er ef slíkt sambandsleysi leiðir til þess að ekki er hægt að ná sambandi við neyðarlínu eða viðbragðsaðila. Skorað er á stjórnvöld að tryggja þessa grunnþjónustu við Vestfirði með hringtengingu ljósleiðarans. Bilunin virðist bæði hafa áhrif á netsambönd, fastlínunúmer og farsíma hjá Símanum. Sigurrós Jónsdóttir hjá Mílu sagði í samtali við Vísi að ekki sé nákvæmlega vitað hvar bilunin sé eða hvort um sé að ræða bilun í streng eða búnaði. „Það er ekki búið að staðsetja bilunina nákvæmlega, en þetta er á milli Reykhóla og Patreksfjarðar. Allir tiltækir aðilar á Vestfjörðum og Vesturlandi eru á leiðinni á staðinn til að staðsetja bilunina nákvæmlega. Það eru allir farnir af stað.“
Mest lesið Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Erlent Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Innlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent Efast viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Innlent Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Netanjahú leysir stríðsráðið upp Erlent Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Innlent Fleiri fréttir Sextán sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Hvergi betra að búa en á Íslandi Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Efast viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Skora á Sjúkratryggingar að semja við tvo heimilislækna Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Þjóðhátíðardagur, Arnarlax og úrsögn úr Samfylkingunni Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Sjá meira