Skiptir ríkið ekki máli hver á Icesavekröfurnar Heimir Már Pétursson skrifar 27. ágúst 2014 14:08 Bjarni Beneditksson segir sölu Hollendinga á Icesavekröfum þeirra sýna að endurheimtur úr þrotabúi Landsbankans verði góðar. Innistæðutryggingasjóður gæti þurrkast upp. vísir/vilhelm
Fjármálaráðherra segir í sjálfu sér ekki skipta máli hverjir eigi kröfurnar á þrotabú Landsbankans vegna Icesave. Sala Hollendinga á þeirra kröfum sýni að þrotabúið muni að fullu endurgreiða forgangskröfur í búið. Bjarni Benediktsson segir þessa sölu staðfesti það sem íslensk stjórnvöld hafi sagt við bresk og hollensk stjórnvöld og aðra forgangskröfuhafa að menn myndu fá í fyllingu tímans fullar endurheimtur. Bjarni segist ekki geta staðfest fullyrðingar Hollendinga um að Icesave kröfurnar verði ekki að fullu bættar fyrr en árið 2018. „Nei, ég get ekki staðfest neitt um það. Það er á endanum blanda af ákvörðunum slitabúsins sjálfs um útgreiðslu og síðan möguleikum á því að fá undanþágur frá Seðlabankanum fyrir afhendingu til kröfuhafa,“ segir Bjarni. En þarna vísar fjármálaráðherra til gjaldeyrishaftana. Það skipti forgangskröfuhafa máli hvernig gangi að afnema gjaldeyrishöftin. „Og ekki hægt að slá neinu föstu um það í dag hvenær útgreiðslur geta átt sér stað. Það er verið að vinna að þeim málum þessa dagana og vikurnar mjög hörðum höndum. Mér finnst líka líklegt að það hafi haft þýðingu þegar dómur féll í fyrra sem gerir það að verkum að styrking krónunnar eykur endurheimtur fyrir forgangskröfuhafana,“ segir fjármálaráðherra. Talið er að kröfurnar séu nú komnar í eigu vogunarsjóða, eða hrægammasjóða eins og þeir eru stundum kallaðir. Bjarni segir mikilvægt að gera sér grein fyrir að íslenska ríkið sé ekki skuldari af þessum kröfum. „Það eru slitabúin. Eina aðkoma ríkisins eða stjórnvalda að uppgjörinu í þessum málum eru á þessu stigi málsins um Seðlabankann og það tengist gjaldeyrishöftunum. Það skiptir í sjálfu sér ekki máli fyrir íslensk stjórnvöld hver er kröfuhafinn í slitabú þegar stjórnvöld eru ekki skuldarinn,“ segir Bjarni. Bjarni segir kröfur hollenskra stjórnvalda um vexti á lán þeirra fyrir Icesavekröfunum vera óheyrilegar. En tekist er á um þær kröfur fyrir dómstólum. Hvernig sem þau mál fara, er það íslenski innistæðutryggingasjóðurinn sem verður krafinn greiðslu en ekki ríkissjóður. Nú eru um 20 milljarðar króna í innistæðutryggingasjóðnum.Þannig að sjóðurinn gæti mögulega þurrkast upp ef þeir vinna málið? „Ekki að fullu eins og ég hef skilið málið en að verulegu leyti. Sjóðurinn hefur svosem þegar boðist til að greiða að verulegu leyti það sem í honum er til kröfuhafanna. En það hefur verið ágreiningur um útfærslu á uppgjörinu,“ segir Bjarni Beneditksson.
Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Fleiri fréttir D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Sjá meira