„Ótækt er að heill landshluti verði skyndilega sambandslaus“ Atli Ísleifsson skrifar 29. ágúst 2014 17:22 Bilunin sem varð í stofnneti Mílu þann 26. ágúst er sú umfangsmesta sem orðið hefur á fjarskiptaneti Mílu frá því að fyrirtækið var stofnað árið 2007. Vísir/Egill
Míla hefur beðist afsökunar á þeirri bilun sem varð í stofnneti Mílu á Vestfjörðum á þriðjudag. Fjarskiptaleið Símans til Vestfjarða féll út og viðskiptavinir Símans urðu með öllu sambandslausir í rúma sex tíma, eða frá klukkan 9.30 til 15.45 þegar viðgerð var lokið. Í fréttatilkynningu frá Mílu segir að bilunin hafi vakið upp margar spurningar varðandi fjarskipti á Vestfjörðum. „Ótækt er að heill landshluti verði skyndilega sambandslaus enda mikil hætta sem getur hlotist af því þegar sjúkrahús, lögregla og aðrar mikilvægar stofnanir standa uppi sambandslausar, auk heilmikilla óþæginda fyrir íbúa og atvinnulíf á svæðinu.“ Í tilkynningunni segir að bilunin sem varð í stofnneti Mílu á Vestfjörðum á þriðjudag 26. ágúst, hafi fyrst sést í stjórnkerfum Mílu um klukkan 9.30. „Þá var strax hafist handa við að leita bilunarinnar í gegnum stjórnkerfi Mílu í Reykjavík. Kerfið gat staðsett bilunina á milli Krossholts og Patreksfjarðar en ekki nákvæmar en það. Því var, vegna alvarleika bilunarinnar, ákveðið að senda viðgerðateymi strax af stað með þyrlu, bæði til Krossholts og Patreksfjarðar, til að leita bilunarinnar. Samstarfsaðili Mílu hélt einnig af stað með búnað til viðgerða á ljósleiðara, ef vera skyldi að leiðarinn hefði laskast. Starfsmenn Mílu á Ísafirði fóru inn í Ísafjarðardjúp, þar sem búnaður fyrir varaleiðina vestur er staðsettur. Við nánari athugun kom í ljós að um bilun í búnaði var að ræða í tækjahúsi Mílu í Krossholti sem olli því að aðalleiðin lá niðri. Íbúar á Vestfjörðum hefðu ekki orðið fyrir jafn miklu sambandsleysi, ef varaleiðin hefði verði að fullu virk en vegna bilunar í búnaði varaleiðar, þá var hún óvirk að hluta.Varaleið getur þó aldrei annað allri umferð sem vanalega fer um aðalleið, svo áhrif bilunar verður alltaf einhver. Það var fyrr í ágúst sem bilunin varð í örbylgjubúnaði varaleiðar Mílu í Ísafjarðardjúpi. Svo illa vildi til að sá búnaður var enn í viðgerð þegar bilunin varð á aðalleiðinni á þriðjudag, sem leiddi til þess að varasambandið náði ekki að bera alla þá umferð sem þurfti til að viðhalda samböndum á svæðinu, því fór sem fór. Fjarskiptaleið Símans til Vestfjarða féll út og viðskiptavinir Símans urðu með öllu sambandslausir í rúma 6 tíma, eða frá klukkan 9.30 til 15.45 þegar viðgerð var lokið.“ Í tilkynningunni segir að bilunin sem varð 26. ágúst sé án nokkurs vafa sú umfangsmesta sem orðið hefur á fjarskiptaneti Mílu frá því að fyrirtækið var stofnað í apríl 2007. „Þetta er í fyrsta skipti sem bæði aðal- og varaleið bila á sama tíma. Engin bilun í kerfinu hefur valdið jafn miklum erfiðleikum fyrir stofnanir, fyrirtæki og einstaklinga. Míla biður hlutaðeigandi afsökunar á óþægindunum.“
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Sjá meira