Amnesty safnaði 1000 undirskriftum í Gleðigöngunni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. ágúst 2014 13:06 Atriði Amnesty á laugardaginn. Mynd/Pétur Friðgeirsson
Fulltrúar Amnesty söfnuðu um eitt þúsund undirskriftum í tengslum við Gleðigönguna á laugardaginn til stuðnings norsku transkonunnar John Jeanette Solstad Remø og Ihar Tsikhanyuk frá Hvíta-Rússlandi. Þetta kemur fram í frétt á vef Amnesty. Íslandsdeild Amnesty International var með skipulagt atriði í göngunni. Þar sýndu fulltrúar deildarinnar á táknrænan hátt mannréttindabrot gegn hinsegin fólki sem víða eru viðhöfð í heiminum. Ungliðarnir léku fanga og fangaverði og héldu á spjöldum sem sögðu frá því að í 78 ríkjum heims er samkynhneigð bönnuð með lögum. Að göngunni lokinni héldu liðsmenn Amnesty niður á Lækjartorg þar sem Íslandsdeildin hafði sett upp bás. Þar var almenningur hvattur til að sýna tveimur ólíkum mannréttindamálum stuðning sinn.Vagn Amesty á laugardaginn.Vísir/VilhelmÞar vöktu þeir máls á baráttu norsku transkonunnar John Jeanette Solstad Remø sem berst fyrir rétti sínum til lagalegrar viðurkenningar á kyni sínu. Hún hefur ekki viljað klára það ferli sem hún þarf samkvæmt norskum lögum til að fá kyni sínu leiðrétt eins og við fjölluðum ítarlega um á heimasíðu Netákallsins. Hitt málið var svo mál Ihar Tsikhanyuk frá Minsk í Hvíta Rússlandi. Í febrúar á síðasta ári sætti hann lögregluofbeldi eftir að hafa stofnað samtök um réttindi samkynhneigðra. Hann hefur ítrekað óskað eftir því að yfirvöld rannsaki ofbeldið en þau hafa neitað þeirri beiðni. Hann bíður þess enn að réttlætinu sé fullnægt. Íslandsdeild Amnesty gaf þeim sem skrifuðu undir listann regbogaarmband sem á var ritað „Ást er mannréttindi“.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira