Flogið í framhaldsskólapartí á Benidorm Stefán Ó. Jónsson skrifar 12. ágúst 2014 16:56 Margir af vinsælustu skemmtikröftum þjóðarinnar stíga á stokk á Benedorm í kvöld. Vísir/Getty/Valli/Stefán/Anton
Nokkrir af vinsælustu skemmtikröftum landsins koma fram á fjölmennu framhaldsskólaballi sem fram fer á Benidorm í kvöld. Nemendur úr fimm framhaldsskólum eru nú staddir þar í útskriftaferð og hefur Steinda Jr, Bent, DJ Óla Geir og Frikka Dór verið flogið út til þess að spila á balli á skemmtistað á Benidorm í kvöld. Fyrirtækið Costa Blanca Travel skipuleggur úrskirftaferð skólanna fimm. Nemendur frá Menntaskólanum í Hamrahlíð, Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Menntaskólanum við Sund, Menntaskólanum í Kópavogi og Borgarholtsskólanum eru nú á Benidorm. Að sögn Bjarna Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Costa Blanca Travel eru um 400 nemendur staddir þar að fagna útskrift úr framhaldsskóla. Að sögn Bjarna verða tónleikarnir mjög flottir. „Við erum með skemmtistað sem verður lokað fyrir aðra en íslensku krakkana. Þau eru komin með armbönd sem eru merkt Icelandic Festival." Íslensku skemmtikraftarnir fá kærkomið frí að sögn Bjarna. Þeir eru búnir að vera þarna í tæpa viku. „Já, sumir eru að taka konurnar með sér út og eru búnir að vera í góðu fríi. Þeir komu fyrir fimm dögum og fara annað kvöld." Bjarni segir að skemmtikraftarnir komi fram á tónleikunum og að fríið sé hluti af laununum. Hann bætir því einnig við að einhverjir þeirra hafi verið með myndavélar með sér og séu að taka upp tónlistarmyndbönd. Upptakan mun einnig fara fram á tónleikunum í kvöld.
Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Fleiri fréttir Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sjá meira