Stjórnlaust teiti í Þingholtunum og vinir í áflogum Stefán Ó. Jónsson skrifar 16. ágúst 2014 09:04 Lögreglan hafði í nógu að snúast í nótt.
Dagurinn og nóttin voru nokkuð erilsöm að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Tilkynnt var um nokkur eignaspjöll, til að mynda var bifreið skemmd og rúða brotin á skemmtistað. Tilkynnt var um teiti sem var að fara úr böndunum í Þingholtunum og slógust nokkrir þar og í átökunum skemmdist bifreið á vettvangi. Höfð voru afskipti af tveim mönnum að slást í miðbænum, eftir á kom í ljós að þeir voru vinir. Annar þeirra var þó svo æstur og illa staddur sökum ölvunar eða annarra vímuefna að hann endaði á því að vera handtekinn og vistaður. Hann var ekki viðræðuhæfur, neitaði að gefa upp hver hann var og í ljós kom að hann hafði farið út að skemmta sér með vasahníf meðferðis. „Áréttað skal að vopnaburður er óheimill á almannafæri en að gefnu tilefni er almennt ekki skynsamlegt að nota vímuefni og vera vopnaður,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni. Tilkynnt var um nokkuð óhöpp sem flest voru þó minniháttar og tengdust neyslu áfengis eða annarra vímugjafa. Tvær konur fengu minniháttar skrámur í miðbænum en slysin tengdust ölvunarástandi þeirra. Lögregla fór einnig á vettvang þar sem maður fótbrotnaði í fótboltaleik en um slys var að ræða. Þá voru þrír drengir gripnir á stolinni vespu, þeir voru 14, 16 og 17 ára. Einhverjir fleiri höfðu tengst málinu og vinnur lögregla í því að hafa upp á þeim. Haft var samband við forráðamenn og tilkynning send til barnaverndar vegna málsins. Tilkynnt var um 3 sem óku undir áhrifum áfengis en þar af var einn líka undir áhrifum fíkniefna og var sviptur ökuréttindum.
Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Betur fór en á horfðist á Mývatni: Lenti á þvervegi og tókst á loft Innlent Fleiri fréttir Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist á Mývatni: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Sjá meira