Þriggja ára stúlku bjargað frá drukknun í Vestmannaeyjum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. ágúst 2014 14:55 Leiklaugin er hægra megin við vaðlaug efst á myndinni. Laugarnar eru aðskildar með rauðri brú. Mynd/Heimasíða Sundlaugar Vestmannaeyja
Þriggja ára gömul stúlka var hætt komin í sundlaug Vestmannaeyja um eittleytið í dag. Stúlkan var eina og hálfa mínútu í kafi áður en henni var komið á sundlaugarbakkann og endurlífgunartilraunir hófust. Arnsteinn Ingi Jóhannesson, forstöðumaður laugarinnar, segir í samtali við Vísi að björgunarafrek hafi verið unnið. Að sögn forstöðumannsins er verið að fara yfir málin í þessum töluðu orðum og öryggismyndavélar skoðaðar. Við fyrstu sýn virðist sem stúlkan, sem var með föður sínum í lauginni, hafi losað sig við kúta sína og farið ofan í vatnið í leiklaug á útisvæði. Arnsteinn segir að sundlaugargestur hafi brugðist fyrst við og dregið stúlkuna upp úr vatninu. Á sama tíma hafi starfsmaður innanhúss verið búinn að átta sig á vandamálinu, látið sundlaugarvörð í búri utandyra vita sem hafi borið að á sama tíma. Endurlífgunartilraunir hófust um leið og var mikil hagur í því að sá sem þar fóru fremst í flokki menn sem vissu nákvæmlega hvað þeir voru að gera. Var meðal annars um að ræða lögreglumann á Selfossi sem ættaður er úr Vestmannaeyjum auk starfsmanna á Herjólfi sem vel kann til verka við endurlífgun. Þá segir Arnsteinn að lögreglu og sjúkrabifreið hafi borið að innan fimm mínútna. Viðbrögð hafi verið til fyrirmyndar á alla kanta. „Viðbrögð alls staðar eftir að þetta uppgötvast eru fumlaus.“Arnsteinn Jóhannesson við rennibrautirnar í Vestmannaeyjum á framkvæmdatíma.Vísir/Óskar P. FriðrikssonBjörgunarafrek unnið „Hún byrjaði mjög fljótlega að kasta upp vatni og gráta,“ segir Arnsteinn um hvernig endurlífungartilraunir hafi gengið. Ekki hafi verið sérstaklega margir í lauginni í dag enda sólarlaust á Heimaey. Fólki hafi samt eðlilega verið brugðið. „Drukknun er auðvitað alltaf alvarlegt mál en fólk verður enn skelkaðra þegar um barn er að ræða,“ segir Arnsteinn. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum var stúlkan flutt á sjúkrahús bæjarins og í kjölfarið send til skoðunar í Reykjavík. Arnsteinn Ingi er afar ánægður með hvernig til tókst og segir hafa sýnt sig að öryggiseftirlit í sundlauginni í Vestmannaeyjum virki. Hann segir gesti og starfsfólk sitt hafa unnið björgunarafrek við aðstæðurnar sem sköpuðust í lauginni í dag.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira