Gagnrýnir forsetann harðlega: Reyndi vísvitandi að spilla sambandinu við Bandaríkin Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. júlí 2014 10:19 Eiður Svanberg Guðnason og Ólafur Ragnar Grímsson. „
Eru störf og stefna stjórnmálamannsins Ólafs Ragnars Grímssonar eitthvað, sem allir eiga að gleyma? Ég er ekki þeirrar skoðunar. Þannig á ekki að skrifa söguna.“ Þetta ritar fyrrverandi ráðherrann og sendiherrann Eiður Svanberg Guðnason í gagnrýnum pistli í Fréttablaðinu í dag. Fer Eiður hörðum orðum um hegðun Ólafs Ragnars Grímssonar í embætti forseta Íslands sem gerði „allt sem í hans valdi stóð til að spilla og skaða samvinnu og samskipti Íslands og Bandaríkjanna.“ Tilefni pistils Eiðs er að forsetinn var á dögunum heiðraður af American Scandinavian Foundation (samtökum fólks af norrænum uppruna í Bandaríkjunum) fyrir framlag hans til samvinnu Íslands við Bandaríkin. Er greinilegt á Eiði að honum finnst Ólafur ekki hafa átt viðurkenninguna skilið. Hann hafi verið harður andstæðingur varnarsamstarfsins, eins af hornsteinum íslenskrar utanríkisstefnu, fullyrt að Bandaríkjamenn geymdu kjarnavopn á Íslandi sem reynst hafi rangt og aldrei beðist afsökunar á því svo Eiði reki minni til. „Ólafur Ragnar Grímsson barðist gegn byggingu nýrrar flugstöðvar við Keflavíkurflugvöll vegna þess að hann leit á flugstöðina sem einhverskonar hernaðarmannvirki í þágu Bandaríkjanna. Illu heillu tókst honum að fá flugstöðina minnkaða frá því sem upphaflega var gert ráð fyrir,“ skrifar Eiður. Auk þess hafi forsetinn reynt að leggja niður Ameríkuflug Flugleiða. „Steingrímur Hermannsson, þá samgönguráðherra, kom í veg fyrir að þau áform hans næðu fram að ganga. Þessa sögu kunna þeir vel, sem störfuðu að flugmálum á þeim tíma.“ Lýkur pistli Eiðs á að rifja upp þegar Carol van Voorst, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, fékk tilkynningu um að henni yrði ekki veitt fálkaorðan árið 2009. Var hún á leið sinni á Bessastaði að veita viðurkenningunni viðtöku þegar forsetinn hringdi í hana og sagði um allsherjar misskilning að ræða. „Seinna gaf hann í skyn að hún verðskuldaði ekki fálkaorðuna. Eftir þessa einstæðu uppákomu varð nokkur bið á því að Bandaríkin skipuðu nýjan sendiherra á Íslandi. Þótt sumum kunni að finnast það ótrúlegt þá skaðaði þessi gjörð forsetans samskipti Íslands og Bandaríkjanna meira en flest annað í þeirri sögu allri.“
Mest lesið Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Innlent Segist saklaus Innlent Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Innlent Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Erlent Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Innlent Reiknað með stormi vestantil og hríðarviðvaranir í gildi Veður „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Innlent „Allt lýðræðið þurrkað út“ Innlent Fleiri fréttir Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi „Allt lýðræðið þurrkað út“ Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Segist saklaus Djúpstæður ágreiningur og íþróttasalur umbreytist í tónleikahöll Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Úthlutaði 91 milljón til félagasamtaka Þungar refsingar undir í máli sem fer enn einn hringinn Sakar minnihluta um ódýra pólitík í aðdraganda kosninga „Þetta þýðir einfaldlega lengri biðtími“ Rúv er óháð hagsmunum stjórnmála og einkaaðila Þarf að greiða þriggja milljóna málskostnað parsins Stefán Vagn leiðir þingflokk Framsóknarflokksins Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Skólameistarinn fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Refsingar Shamsudin-bræðra og Samúels þyngdar Sýknudómur í hryðjuverkamálinu ómerktur Stofna óháðan flokk og segja að Hildur muni víkja þeim úr nefndum og ráðum Fyrsti listi Viðreisnar í Reykjanesbæ kynntur Staðan ekki breyst í samræmi við lýsingar ráðherra Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Sjá meira