Innlent

Kynferðisbrotum fækkar milli mánaða

Stefán Árni Pálsson skrifar
Töluvert fleiri ökumenn voru teknir undir áhrifum ávana- og fíkniefna í júní.
Töluvert fleiri ökumenn voru teknir undir áhrifum ávana- og fíkniefna í júní. Vísir/Mynd úr safni
Kynferðisbrotum fækkar milli mánaða og það sem af er ári hefur verið tilkynnt um 43% færri brot miðað við meðaltal sama tímabils síðustu þriggja ára en þetta kemur fram í skýrslu um afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir júnímánuð 2014.

Töluvert fleiri ökumenn voru teknir undir áhrifum ávana- og fíkniefna í júní en teknir hafa verið síðastliðna mánuði. Meira en 60% aukning hefur verið á skráðum brotum tengdum akstri undir áhrifum ávana- og fíkniefna það sem af er ári miða við sama tímabil í fyrra.

Skráðum hegningarlagabrotum hefur fækkað það sem af er ári miðað við fyrri ár. Tilkynnt hefur verið um 15% færri hegningarlagabrot til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en á sama tíma í fyrra.

Tilkynningum um líkamsárásir fækkar nokkuð á milli mánaða, eða um rúmlega þriðjung og hafa ekki borist færri tilkynningar um ofbeldisbrot í einum mánuði á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×