Innlent

Oddviti á vergangi

Höskuldur Kári Schram skrifar
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir oddviti framsóknarmanna og flugvallarvina þekkir húsnæðisvandann í Reykjavík af eigin raun. Hún þurfti að flytja yfir í annað bæjarfélag til að finna leiguíbúð.

„Ég er búin að vera á húsnæðisvergangi. Ég er einstæð móðir með þrjú börn. Ég bjó með systur minni í Bólstaðarhlíðinni í þriggja herbergja íbúð. Við settum bara tvö rúm í annað svefnherbergið og þar sváfum við fjögur. Ég átti mjög erfitt með að finna aðra íbúð sem  var stærri og ég fékk systur mína með mér þarna inn. Þetta var í hverfinu þar sem börnin mín voru í skóla. Í mars á þessu ári fer ég í Kópavoginn. Auðvitað var það tímabundið úrræði og ég vil flytja til Reykjavíkur. Ég hef því mikla ástríðu fyrir húsnæðismálum,“ segir Sveinbjörg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×