„Æi strákar þetta er ekkert að marka, sorry“ Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 8. maí 2014 14:56 Maðurinn játaði fyrir dómi að hafa hótað lögreglumönunum lífláti og samræmdist sú játning hans upptökum úr "Eyewitness“ búnaði lögreglubifreiðarinnar. VÍSIR/GVA
Rúmlega tvítugur karlmaður var í gær dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Austurlands fyrir líflátshótun í garð tveggja lögreglumanna og líkamsárás á Egilsstöðum. Maðurinn játaði fyrir dómi að hafa hótað lögreglumönunum lífláti og samræmdist sú játning hans upptökum úr „Eyewitness“ búnaði lögreglubifreiðarinnar. „Já mér er skítsama um ykkur“, „djöfull eruð þið fokking rottur“, „þú ert skíthræddur við mig“ og „djöfull skal ég fokking drepa ykkur“ eru setningar sem maðurinn lét falla í garð lögreglumanna Dómurinn taldi hótunina vera til þess fallna að valda lögreglumönnunum ugg um eigin velferð. Jafnvel þó maðurinn hafi borið hótunina til baka 14 sekúndum síðar með orðunum: „Æi strákar þetta er ekkert að marka, sorry.“ Til þess var þó litið við ákvörðun refsingar. Hann var einnig dæmdur fyrir fyrir tilraun til þess að kýla annan lögreglumanninn áður en hann var borinn inn í lögreglubifreiðina. Maðurinn neitaði sök en framburður vitna bar þó um annað. Dómurinn tók tillit til þess að maðurinn hefði ólíklega gert sér grein fyrir að um lögreglumann væri að ræða. Því var hann dæmdur fyrir líkamsárás en ekki brot gegn valdstjórninni hvað þennan hluta dómsins varðar. Hann var hins vegar sýknaður af því að hafa sparkað í hinn lögregluþjóninn en engin vitni voru að því og lögreglumaðurinn aflaði sér ekki áverkavottorðs.
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira