Fjórði meltingarlæknirinn segir upp á Landspítalanum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. desember 2014 15:45 Sunna Guðlaugsdóttir, meltingarsérfræðingur, segir álagið á Landspítalanum hafa aukist mikið, sérstaklega síðastliðið ár. Vísir/GVA
Fjórir meltingarlæknar hafa nú sagt upp á Landspítalanum en Sunna Guðlaugsdóttir, meltingarsérfræðingur, sagði upp störfum í gær. Áður höfðu þrír meltingarlæknar til viðbótar sagt upp á spítalanum, þeir Kjartan Örvar Sigurðsson, Óttar Már Bergmann og Jón Örvar Kristinsson. Sunna sem hefur starfað á Landspítalanum í tæpan áratug er í 100% stöðu á meltingardeild lyflækningasviðs. Að öllu óbreyttu tekur uppsögn hennar gildi þann 1. apríl næstkomandi. Aðspurð um ástæðu uppsagnar sinnar segir Sunna: „Það er bara ástandið á spítalanum, sérstaklega síðastliðið ár. Það hefur bara týnst mjög úr hersveitum lækna og álagið hefur aukist í samræmi við það. Það er erfiðara að koma sjúklingum í góðan farveg vegna þess að netið er orðið grisjóttara.“ Sunna segir kjarabaráttu lækna einnig spila inn í þar sem það vanti sárlega nýliðun í læknastéttinni og hafi gert í mörg ár. Það séu mjög mörg stöðugildi á spítalanum sem hefur ekki tekist að manna í það og þar af leiðandi sé starfsaðstaðan mjög slæm. Hún segir stöðuna á Landspítalanum í raun grafalvarlega: „Fólk hefur fundið fyrir auknu álagi í starfi í talsvert langan tíma og það hefur bara aukist í rauninni. Í þeim skilningi er maður svolítið svartsýnn því mér finnst þetta vera orðinn svo langur tími. Það er því mjög mikilvægt að semja og að kjörin leyfi það að fólk komi heim.“Stjórnvöld skilningslaus og í algjörri afneitun Í uppsagnarbréfi sínu segir Sunna meðal annars: „Mér sýnist skilningsleysi stjórnvalda vera mjög alvarlegt og einkennast af algjörri afneitun. Læknar eru ekki að ræða brottför af landinu sem einhverskonar hótun til framtíðar. Fjölmargir læknar eru þegar farnir og ástandið er í rauninni löngu orðið óviðunandi. Eina leiðin til að fá unga lækna til að koma til landsins eftir sérnám er að greiða þeim samkeppnishæf laun og það er forsenda fyrir því að mögulegt verði að byggja hér aftur upp heilbrigðisþjónustu sem geti staðist samanburð við nágrannalönd okkar. Læknar eru því að taka ábyrga afstöðu með launakröfum sínum og eru að reyna að afstýra stórslysi. Miðað við yfirlýsingar forystumanna landsins undanfarna daga virðist mér of langt í land með að hér verði þróuninni snúið við. Ég hef staðið vaktina á erfiðum tímum undanfarin áratug í ástandi sem hefur bara versnað smátt og smátt og get ekki hugsað mér að halda áfram á þennan hátt eins og staðan blasi við nú. Því miður, því Landspítalinn var alltaf svolítið fyrirheitna landið fyrir mér.“
Tengdar fréttir Reynslubolti á spítalanum hendir inn handklæðinu „Já, ég sagði upp í dag,“ segir Einar Páll í samtali við Vísi. Hann hefur starfað sem svæfingar- og gjörgæslulæknir á Landspítalanum í Fossvogi frá því árið 2001. 15. desember 2014 09:36 Segja ríkisstjórnina ráðalausa í læknadeilunni Formenn stjórnarandstöðunnar leggja til að skipuð verði sáttanefnd vegna læknadeilunnar. 14. desember 2014 10:44 Munu ekki ráða sig í stöður almennra lækna Læknakandidatar hafa sent fjármálaráðherra og heilbrigðismálaráðherra yfirlýsinguna sem 64 læknakandídatar skrifa undir. 16. desember 2014 19:03 „Get ekki búið á Íslandi meðan sonur minn fær ekki rétta meðferð“ Íslensk fjölskylda flutti til Noregs þar sem enginn læknir hér á landi gat annast son þeirra. 15. desember 2014 14:54 Nýtt útspil í læknadeilunni Forystumenn ríkisstjórnarinnar funduðu með formanni samninganefndar ríkisins í læknadeilunni og sáttasemjara í dag. Samninganefndin metur nú næstu skref eftir að læknar komu með nýtt útspil á fundi í Karphúsinu í gær. 17. desember 2014 19:13 Tveir meltingarlæknar í viðbót segja upp Sigurður Ólafsson, settur yfirlæknir meltingarlækninga á Landspítalanum, segist skilja vel að menn sjái sér ekki lengur fært að starfa á spítalanum. 1. desember 2014 12:04 „Staðan er sú að mánaðarlaun okkar fyrir fulla vinnu á Íslandi duga okkur ekki til framfærslu“ Tveir læknar á Landspítalanum birtu uppsagnarbréf sín á Facebook í gærkvöldi. 28. nóvember 2014 10:14 Full alvara á bak við uppsögnina Tveir svæfingalæknar sögðu upp störfum á Landspítalanum í dag. Ef fram fer sem horfir verður erfitt að manna stöður svæfingasérfræðinga á gjörgæslu spítalans. 15. desember 2014 19:32 Þjóðarsátt er óumflýjanleg Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, spurði stjórnarandstöðuna að því í vikunni hvort það væri sanngjörn krafa, í ljósi þess að almennur læknir á Landspítalanum væri með um 1,1 milljón á mánuði í heildarlaun og yfirlæknar með um 1.350 þúsund, að við þá upphæð bættist um það bil ein meðalmánaðarlaun fólks í landinu til að leysa læknaverkfallsdeiluna. Ekki fékkst svar við spurningunni á þinginu í gær enda snýst læknadeilan öll um hana. 12. desember 2014 12:00 Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fleiri fréttir Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Sjá meira
Reynslubolti á spítalanum hendir inn handklæðinu „Já, ég sagði upp í dag,“ segir Einar Páll í samtali við Vísi. Hann hefur starfað sem svæfingar- og gjörgæslulæknir á Landspítalanum í Fossvogi frá því árið 2001. 15. desember 2014 09:36
Segja ríkisstjórnina ráðalausa í læknadeilunni Formenn stjórnarandstöðunnar leggja til að skipuð verði sáttanefnd vegna læknadeilunnar. 14. desember 2014 10:44
Munu ekki ráða sig í stöður almennra lækna Læknakandidatar hafa sent fjármálaráðherra og heilbrigðismálaráðherra yfirlýsinguna sem 64 læknakandídatar skrifa undir. 16. desember 2014 19:03
„Get ekki búið á Íslandi meðan sonur minn fær ekki rétta meðferð“ Íslensk fjölskylda flutti til Noregs þar sem enginn læknir hér á landi gat annast son þeirra. 15. desember 2014 14:54
Nýtt útspil í læknadeilunni Forystumenn ríkisstjórnarinnar funduðu með formanni samninganefndar ríkisins í læknadeilunni og sáttasemjara í dag. Samninganefndin metur nú næstu skref eftir að læknar komu með nýtt útspil á fundi í Karphúsinu í gær. 17. desember 2014 19:13
Tveir meltingarlæknar í viðbót segja upp Sigurður Ólafsson, settur yfirlæknir meltingarlækninga á Landspítalanum, segist skilja vel að menn sjái sér ekki lengur fært að starfa á spítalanum. 1. desember 2014 12:04
„Staðan er sú að mánaðarlaun okkar fyrir fulla vinnu á Íslandi duga okkur ekki til framfærslu“ Tveir læknar á Landspítalanum birtu uppsagnarbréf sín á Facebook í gærkvöldi. 28. nóvember 2014 10:14
Full alvara á bak við uppsögnina Tveir svæfingalæknar sögðu upp störfum á Landspítalanum í dag. Ef fram fer sem horfir verður erfitt að manna stöður svæfingasérfræðinga á gjörgæslu spítalans. 15. desember 2014 19:32
Þjóðarsátt er óumflýjanleg Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, spurði stjórnarandstöðuna að því í vikunni hvort það væri sanngjörn krafa, í ljósi þess að almennur læknir á Landspítalanum væri með um 1,1 milljón á mánuði í heildarlaun og yfirlæknar með um 1.350 þúsund, að við þá upphæð bættist um það bil ein meðalmánaðarlaun fólks í landinu til að leysa læknaverkfallsdeiluna. Ekki fékkst svar við spurningunni á þinginu í gær enda snýst læknadeilan öll um hana. 12. desember 2014 12:00