Andstaðan við ESB mjög sérstök í alþjóðlegu samhengi Þorbjörn Þórðarson skrifar 13. maí 2014 19:30
Það sem er sérstakt við andstöðuna við Evrópusambandið á Íslandi er sú staðreynd að andstaðan er í meginstraumnum hjá meirihluta þjóðarinnar en ekki í jaðar- eða popúlistaflokkum eins og víða í Evrópu. Þá er mikill stuðningur við EES-samninginn, þrátt fyrir andstöðuna við ESB. Þetta segir prófessor í sagnfræði sem hefur rannsakað málið. Guðmundur Hálfdanarson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands hefur lagst í ítarlegar rannsóknir á þjóðerniskenningum og íslensku þjóðerni og er m.a. höfundur bókarinnar Íslenska þjóðríkið - uppruni og endimörk þar sem þessi mál eru til umfjöllunar. Guðmundur flutti í dag erindi um Ísland í ljósi pópúlískrar andstöðu við ESB á fundi Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og Evrópustofu. Popúlista- og þjóðernisflokkum sem ala á andúð gagnvart Evrópusamvinnu hefur vaxið fiskur um hrygg að undanförnu. Þar má til dæmis nefna UKIP, Sjálfstæðisflokk Bretlands, Sverigedemokraterna og Dansk folkeparti, Front National í Frakklandi og Lega Nord á Ítalíu.Kosningar til Evrópuþings verða hinn hinn 22. maí og spár gera ráð fyrir að 20-25% atkvæða fari til popúlistaflokka sem eru andsnúnir ESB.Sterk og sýnileg andstaða Andstaðan við Evrópusambandið er mjög sterk og sýnileg á Íslandi, bæði á hægri og vinstri væng stjórnmálanna og ríkisstjórnarflokkarnir tveir eru mótfallnir aðild. Það sem er sérstakt við andstöðuna við Evrópusambandið hér á landi, að mati Guðmundar, er sú staðreynd að þessi andstaða þrífst í meginstraumnum, hjá þeim flokkum sem njóta stuðnings hjá meirihluta þjóðarinnar á meðan það eru oftast popúlistaflokkar á jaðri stjórnmálanna sem hafa slíka stefnu í Evrópu á sama tíma og stóru miðjuflokkarnir þar eru flestir hlynntir aðild. Þá segir Guðmundur að það sé einnig athyglisvert að mikill stuðningur sé við EES-samninginn á sama tíma og meirihluti íslensku þjóðarinnar sé andsnúinn aðild að Evrópusambandinu. Rætt var við Guðmund í kvöldfréttum Stöðvar 2 og má sjá viðtal við hann í meðfylgjandi myndskeiði.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Fleiri fréttir Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Sjá meira