Orkuveituforstjóri hefur bústað við Þingvallavatn til umráða Garðar Örn Úlfarsson skrifar 5. september 2014 07:00 Við þessa litlu vík við Þingvallavatn í landi Nesjavalla ræður forstjóri Orkuveitunnar yfir sumarbústað fyrirtæksins og meðfylgjandi hraðbát sem geymdur er í sérstöku bátaskýli sem sést til hægri á myndinni. Fréttablaðið/Pjetur
Á sama tíma og Orkuveita Reykjavíkur selur eignir sem ekki tengjast kjarnastarfsemi fyrirtækisins er sumarhús við Þingvallavatn sem ætlað er forstjóranum ekki sett á sölulista. Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar, segir að þar sem sumarhúsið standi ofan á vatnstökusvæði á Grámel hafi ekki þótt rétt að hafa lóðina á sölulista eigna fyrirtækisins, sem samþykktur var af stjórn OR á árunum 2010 og 2011. „Í gegnum tíðina hafa hitaveitustjórar og síðar forstjórar Orkuveitunnar haft ráðstöfunarrétt yfir húsinu,“ svarar Eiríkur aðspurður um hverjir hafi afnotarétt að húsinu. Eiríkur kveður Bjarna Bjarnason forstjóra vera erlendis og því geti hann ekki að svo stöddu svarað því hver hafi notað bústaðinn síðast og hvenær.Læst hlið. Ekki er ætlast til að almenningur komist að bústað forstjóra Orkuveitunnar. Vísir/Pjetur„Húsið hefur lítið verið notað undanfarinn áratug eða svo sökum ástands þess,“ heldur Eiríkur áfram og bætir við: „Ákveðið var þó að gera það múshelt með því að endurbæta klæðningu að utan nú nýverið.“ Sumarhús forstjórans er á afviknum stað við lítinn tanga milli tveggja víkna og sýnist reyndar í afbragðs standi. Þótt bústaðurinn sé upphaflega frá 1946 virðist hann hafa verið mikið endurnýjaður og er meðal annars með nýja viðarklæðningu. Innandyra er arinn og leðurhúsgögn. Á veröndinni eru garðhúsgögn og veglegt gasgrill. Í fallegri víkinni er stórt bátaskýli sem byggt var 1998. Skýlið geymir viðarhraðbát og annan minni léttabát. Að sögn Eiríks er framtíð forstjórahússins óráðin. „Reiknað er með að það verði á sömu lóð og og vatnstökuhúsið á Grámel og í umsjá Orku náttúrunnar, dótturfyrirtækis OR sem sér um rekstur virkjananna og þar með vatnstökuna á Grámel. Þetta er þó ekki frágengið,“ segir hann.Nægt rými. Langt er í næstu bústaði frá sumarhúsi sem forstjóri Orkuveitunnar ræður yfir á litlum tanga milli tveggja víkna í Þingvallavatni.Vísir/PjeturEins og fram hefur komið hyggst Orkuveitan ekki framlengja hálfrar aldar gamla lóðarleigusamninga sumarhúsa sem standa við Þingvallavatn skammt norðan við forstjórabústaðinn. Til stóð á tímabili að selja eigendunum lóðirnar eða að minnsta kosti endursemja um leiguna sem Orkuveitunni þótt orðin alltof lág enda ekki vísitölubundin í upphafi. Í júní ákvað stjórn OR hins vegar að hætta við söluna og að hætt yrði að nýta lóðirnar undir sumarhús þar sem stórt vatnsból sé á svæðinu og mikilvægt væri fyrir rekstur Nesjavallavirkjunar að ráða yfir strandlengjunni við vatnið. Forstjóranum var falið að annast málið. Eigendur sumarhúsanna mótmæltu bæði fyrrgreindum áformum um sölu lóðanna og um hækkun leiguverðs. Ekki hefur náðst tal af lögmanni þeirra en Eiríkur segir fulltrúa Orkuveitunnar og húseigenda hafa átt í samskiptum síðustu vikur. „Hvort þau leiða til niðurstöðu eða þá hvaða er ekki hægt að segja til um núna og ég vil ekki vera með neinar vangaveltur þar um,“ segir upplýsingafulltrúinn.Á veröndinni standa húsgögn og stórt gasgrill tilbúið til notkunar.Vísir/PjeturVeiði bönnuðVísir/PjeturBátaskýlið sem byggt var 1998. Skýlið geymir viðarhraðbát og annan minni léttabát.Vísir/Pjetur
Tengdar fréttir Orkuveitan vill losna við Þingvallabústaði Stjórn Orkuveitunnar er hætt við sölu gamalla sumarhúsalóða í landi Nesjavalla við Þingvallavatn og vill bústaðina burt. Mikilvægt sé fyrir Nesjavallavirkjun að OR eigi strandlengjuna. Sumarhúsaeigendur eru ósáttir en hafa tapað kærumáli. 3. september 2014 07:00 Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira
Orkuveitan vill losna við Þingvallabústaði Stjórn Orkuveitunnar er hætt við sölu gamalla sumarhúsalóða í landi Nesjavalla við Þingvallavatn og vill bústaðina burt. Mikilvægt sé fyrir Nesjavallavirkjun að OR eigi strandlengjuna. Sumarhúsaeigendur eru ósáttir en hafa tapað kærumáli. 3. september 2014 07:00