Hefur ekki komið í bústaðinn í tvö ár Hjörtur Hjartarson skrifar 5. september 2014 19:30
Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur segist ekki hafa dvalið í sumarbústað fyrirtækisins við Þingvallavatn undanfarin tvö ár en bústaðurinn er honum einum ætlaður. Engu að síður vill stjórn fyrirtækisins ekki selja bústaðinn þrátt fyrir að flest allt sem ekki tengist kjarnastarfsemi Orkuveitunnar sé falt. Á einstaklega fallegum stað við Þingvallavatn stendur forstjórabústaður Orkuveitunnar og bátaskýli einnig. Upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar segir að bústaðurinn hafi lítið sem ekkert verið notaður undanfarin ár vegna þess hversu slæmu ástandi hann er í. Fréttastofa Stöðvar 2 skoðaði bústaðinn í dag. Einkavegur liggur að bústaðnum, afmarkaður með verklegu hliði. Sjálfur bústaðurinn var reistur 1946 en hefur greinilega verið mikið endurnýjaður. Viðarklæðningin er tiltölulega nýleg að sjá og innbúið sömuleiðis. Leðursófasett og arin þar á meðal. Í fallegri víkinni er einnig bátaskýli sem var byggt 1998. Inni í því eru viðarhraðbátur og lítill árabátur. Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur sagði í samtali við fréttastofu í dag ekki hafa komið í bústaðinn í um tvö ár. Hann sagðist ekki hafa upplýsingar um hvort eða hverjir hafi notað hann á þessum tíma. Nýtt gasgrill er á veröndinni og því ljóst að einhverjar mannaferðir hafa verið við bústaðinn í fjarveru forstjórans.Almennir starfsmenn hafa ekki aðgang að bústaðnum Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar sagði í viðtali við Fréttablaðið að bústaðurinn hafi lítið verið notaður undanfarin áratug eða svo vegna ástand þess. Nýverið hafi þó verið ákveðið að gera það múshelt með því að endurbæta klæðninguna að utan. Á sama tíma og Orkuveita Reykjavíkur selur eignir sem ekki tengjast kjarnastarfsemi fyrirtækisins er sumarhús við Þingvallavatn sem ætlað er forstjóranum en er ónotað, ekki sett á sölulista.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira